Kotturinn-i-sekknum-merki-1.png

Kötturinn í sekknum er hlaðvarp Neytendasamtakanna. Eins og við er að búast er áherslan á neytendamál og þar er svo sannarlega af nógu að taka. Við vonum að hlustendur verði einhvers vísari eftir hvern þátt.

Heitið á þáttunum er tilvísun í gamalt slagorð Neytendasamtakanna „Kauptu ekki köttinn í sekknum!“ Það er óhætt að segja að orðatiltækið eigi ekki síður við í dag.

Barnið matað

Bragð er að þá barnið finnur

Rannsóknir sýna að tilbúinn barnamatur getur verið of sætur, of mjúkur og jafnvel næringarsnauður. Brynhildur ræðir málin við Birnu Þórisdóttur og Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur.

Kaup á nýjum bíl – gallar og ábyrgð

Þegar neytendur kaupa nýjan bíl vænta þeir þess að bíllinn sé í fullkomnu lagi. Það geta þó komið upp gallar í nýjum bílum. Við förum yfir úrræði neytenda þegar svo ber undir, ábyrgð framleiðanda, þjónustuskoðanir og margt fleira. Gestur þáttarins er Björn Kristjánsson sérfræðingur hjá FÍB

Þættirnir á Spotify og Apple:

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.