Þegar neytendur kaupa nýjan bíl vænta þeir þess að bíllinn sé í fullkomnu lagi. Það geta þó komið upp gallar í nýjum bílum. Í þættinum er farið yfir úrræði neytenda þegar svo ber undir, ábyrgð framleiðanda, þjónustuskoðanir og margt fleira. Una Magnea ræðir við Björn Kristjánsson sérfræðing hjá FÍB.
Úrræði og réttur neytenda
Nær öll mál sem Neytendasamtökin fá á sitt borð vegna nýrra bíla snúa að galla sem kemur í ljós eftir afhendingu. Björn þekkir slík mál vel í gegnum störf sín hjá FÍB. Í þættinum fer hann vel yfir þau úrræði sem neytendur hafa lögum samkvæmt þegar upp koma gallar og hvernig best sé að bregðast við.
Ekkert er einfalt í þessum efnum en það getur til dæmis skipt máli hvað það er sem bilar í bílnum. Frestur til að kvarta undan galla er almennt tvö ár en fimm ár ef hlut er ætlaður verulega lengri endingartími. Hér skiptir því máli hvort það er rúðuþúrrkan sem er gölluð eða vélin. Þá getur einnig verið deilt um það hvort að í raun sé um galla að ræða eða bilun sem neytandi ber þá ábyrgð á.
Neytendur eiga rétt á úrbótum ef þeir kaupa gallagrip en úrræðin eru nokkur og fara eftir alvarleika gallans eins og Björn rekur.
Björn brýnir fyrir neytendum sem hyggjast flytja inn bíla sjálfir, ekki síst frá löndum utan Evrópu, að skoða vel ábyrgð framleiðenda. Þá er fjallað um þjónustuskoðanir og hvort að neytendur geti glatað lögmætum rétti sínum ef þeir sleppa slíkum skoðunum hjá umboðum.
Mynd: iStock.com/Nikolay Evsyukov