Kotturinn-i-sekknum-merki-1.png
Barnið matað

Bragð er að þá barnið finnur

Rannsóknir sýna að tilbúinn barnamatur getur verið of sætur, of mjúkur og jafnvel næringarsnauður. Brynhildur ræðir málin við Birnu Þórisdóttur og Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur.
Barnið matað
Kötturinn í sekknum
Bragð er að þá barnið finnur
Loading
/

Þættirnir á Spotify og Apple:

Í þessum fyrsta þætti er fjallað um mál sem snertir alla foreldra ungra barna. Rannsóknir sýna að barnamatur er oft ekki eins hollur og gera mætti ráð fyrir. Maturinn getur verið of sætur, of mjúkur og jafnvel næringarsnauður. En hvað er til ráða? Við fengum til okkar þær Birnu Þórisdóttur lektor hjá HÍ og Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur verkefnastjóra næringar hjá Landlækni.

Of mjúkur, of sætur…

Þær Birna og Jóhanna taka það skýrt fram í þættinum að barnamaturinn sé börnum að sjálfsögðu ekki hættulegur. Hann geti hins vegar:

  • Innihaldið allt of mikla sætu, svo sem ávaxtasykur.
  • Verið of mjúkur en börn þurfa að læra að tyggja.
  • Verið of næringarsnauður og vatnskenndur.

Pokamatur (skvísur) eru einnig mjög vinsæll og áberandi á markaði en þetta er matur sem ætti að neyta í hófi. Eins ætti að hafa passa að gefa ekki ungum börnum of prótínríka fæðu ,svo sem skyr, því það geti haft neikvæð áhrif á efnaskipti barna seinna meir.

Foreldrar nýta tilbúinn mat

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Neytendasamtökin fjalla um barnamat og næringargildi hans.
Í viðamikilli rannsókn, sem bresku neytendasamtökin Which? og næringardeild Háskólans í Leeds stóðu að, voru 632 tegundir af barnamat skoðaðar út frá næringarinnihaldi og merkingum á umbúðum. Horft var til matvæla sem ætluð eru börnum frá 6 mánaða til 3 ára aldurs og finna má í stærstu matvörukeðjum Bretlands. Niðurstaðan er í stuttu máli sú að breski markaðurinn er fullur af lélegum barnamat.

Viðhorf foreldra barna á aldrinum 6 mánaða til þriggja ára voru einnig skoðuð og voru niðurstöðurnar áhugaverðar:

  • Fjölskyldur reiða sig á tilbúinn mat fyrir börn frá 6 mánaða aldri. Nær helmingur foreldra, eða 47%, svöruðu því til að þau gæfu börnum sínum „alltaf“ eða „oftast“ tilbúinn mat.
  • Það kom foreldrum mjög á óvart að ekki væru neinar reglur um hámark sykurinnihalds í barnamat.
  • 70% foreldra töldu rétt að merkja barnamat með háu hlutfalli sykurs með varúðarmerkingu á umbúðum.
  • Tæp 60% foreldra höfðu áhyggjur af of miklum náttúrulegum sykri í mat.
  • 56% foreldra fannst erfitt að velja hollari valkosti út frá upplýsingum á umbúðum.

Fleiri þættir

Kaup á nýjum bíl – gallar og ábyrgð

Þegar neytendur kaupa nýjan bíl vænta þeir þess að bíllinn sé í fullkomnu lagi. Það geta þó komið upp gallar í nýjum bílum. Við förum yfir úrræði neytenda þegar svo ber undir, ábyrgð framleiðanda, þjónustuskoðanir og margt fleira. Gestur þáttarins er Björn Kristjánsson sérfræðingur hjá FÍB

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.