Fréttir

Gjöfin sem gleður….eða ekki

Færst hefur í vöxt að fyrirtæki og sveitarfélög kaupi gjafabréf fyrir starfsfólk sitt og gefi í jólagjöf eða við önnur tækifæri.  Nokkuð hefur verið um kvartanir vegna slíkra bréfa og þá helst yfir því að gildistíminn sé óvenju stuttur.

Neytendasamtökin eiga erfitt með að skerast í leikinn þar sem ekki er um að ræða eiginleg neytendakaup heldur fyrirtæki/sveitarfélag sem kaupir vöru/þjónustu af öðru fyrirtæki. Í þeim tilfellum sem samtökin hafa heyrt af hefur seljandi gefið góðan afslátt af kaupunum enda verið að kaupa mikið magn gjafabréfa á einu bretti. Á móti kemur að skilmálarnir eru þrengri en almennt gerist.

Þótt Neytendasamtökin hafi fengið kvartanir vegna þessa er ekki hægt að fullyrða að gjafabréfin komi ekki í flestum tilfellum að góðum notum. Neytendasamtökin hvetja þó fyrirtæki sem kaupa gjafabréf fyrir starfsfólk sitt til að fara fram á eðlilegan gildistíma gjafabréfa sem er 4 ár hið minnsta og er í samræmi við almennan fyrningarfrest á kröfum.  Að sama skapi eru eigendur bréfanna hvattir til að skoða skilmálana vel og nýta gjafabréfin áður en þau renna út á tíma.

Fréttir í sama dúr

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Aðalfundur 22. október

Staðan í Vaxtamálinu

Smálánabaráttan

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.