1. Þáttur | Bragð er að þá barnið finnur

Tilbúinn barnamatur, sem ætlaður er ungabörnum, er oft á tíðum næringarsnauður og allt of sætur að mati sérfræðinga
Kötturinn í sekknum
Kötturinn í sekknum
1. Þáttur | Bragð er að þá barnið finnur
Loading
/

Barnamatur sem skortir næringu

Kötturinn í sekknum er hlaðvarp Neytendasamtakanna. Eins og við er að búast er áherslan á neytendamál og þar er svo sannarlega af nógu að taka. Við vonum að hlustendur verði alltaf einhvers vísari eftir hvern þátt.

Heitið á þáttunum er tilvísun í gamalt slagorð Neytendasamtakanna „Kauptu ekki köttinn í sekknum!“  Það er óhætt að segja að orðtækið eigi ekki síður við í dag.  

Í þessum fyrsta þætti er fjallað um mál sem snertir alla foreldra ungra barna. Rannsóknir sýna að barnamatur er oft á tíðum alls ekki eins hollur og ætla mætti. Hann getur verið of sætur, of næringarsnauður og of mjúkur. En hvað er til ráða? Við fengum til okkar þær Birnu Þórisdóttur lektor hjá HÍ og Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur verkefnastjóra næringar hjá Landlækni.

Of mjúkur, of sætur

Þær Birna og Jóhanna taka það skýrt fram í þættinum að barnamaturinn sé börnum að sjálfsögðu ekki hættulegur. Hann geti hins vegar:

  • Innihaldið allt of mikla sætu, svo sem hunang.
  • Verið of mjúkur og þar með ekki haft þroskandi áhrif á börn.
  • Verið of næringarsnauður og vatnskenndur, þegar magamál þeirra er lítið.

Þá mæla þær gegn því að foreldrar gefi ungum börnum of prótínríka fæðu því sú fæða, svo sem skyr, geti haft neikvæð áhrif á efnaskipti barna seinna meir.

Rannsókn sýnir að foreldrar nýta tilbúinn mat

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Neytendasamtökin fjalla um barnamat og næringargildi hans.
Í viðamikilli rannsókn, sem bresku neytendasamtökin Which? og næringardeild Háskólans í Leeds stóðu að, voru 632 tegundir af barnamat skoðaðar út frá næringarinnihaldi og merkingum á umbúðum. Horft var til matvæla sem ætluð eru börnum frá 6 mánaða til 3 ára aldurs og finna má í stærstu matvörukeðjum Bretlands. Niðurstaðan er í stuttu máli sú að breski markaðurinn er fullur af lélegum barnamat.

Viðhorf foreldra barna á aldrinum 6 mánaða til þriggja ára voru einnig skoðuð og voru niðurstöðurnar áhugaverðar:

  • Fjölskyldur reiða sig á tilbúinn mat fyrir börn frá 6 mánaða aldri. Nær helmingur foreldra, eða 47%, svöruðu því til að þau gæfu börnum sínum „alltaf“ eða „oftast“ tilbúinn mat.
  • Það kom foreldrum mjög á óvart að ekki væru neinar reglur um hámark sykurinnihalds í barnamat.
  • 70% foreldra töldu rétt að merkja barnamat með háu hlutfalli sykurs með varúðarmerkingu á umbúðum.
  • Tæp 60% foreldra höfðu áhyggjur af of miklum náttúrulegum sykri í mat.
  • 56% foreldra fannst erfitt að velja hollari valkosti út frá upplýsingum á umbúðum.

Fleiri þættir

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.