Færðu bestu kjörin?

Tryggingar vega þungt í heimilisbókhaldinu. Því er gott að endurskoða reglulega tryggingaþörfina og athuga hvort hægt sé að fá betri kjör.

Teikning af krónupeningi
Halldór Baldursson

Leiða má að því líkur að trúfastir viðskiptavinir greiði hærra verð en þeir sem koma nýir inn eftir að hafa fengið hagstætt tilboð. Reyndar sýnir rannsókn danska samkeppniseftirlitsins að það er einmitt raunin því viðskiptavinur til 10 ára borgar að meðaltali 7-8% meira fyrir tryggingar en nýr viðskiptavinur.

  • Farðu í gegnum tryggingarnar þínar árlega. Aðstæður gætu hafa breyst og þörf á að meiri vernd á ákveðnum sviðum og minni á öðrum. 

 

  • Gerðu verðsamanburð með því að ræða við vini og fjölskyldu. Það hjálpar til ef þú ferð í samningaviðræður við tryggingafélagið.

 

  • Athugaðu hvort að þú getir ekki fengið betri kjör hjá tryggingafélaginu þínu, sér í lagi ef þér finnst þjónustan góð.

 

  • Leitaðu tilboða frá öðrum tryggingafélögum ef þú hefur á tilfinningunni að þú sért ekki að fá bestu kjörin. Það er auðvelt, gert á netinu og tekur einungis örfáar mínútur.

 

  • Við verðsamanburð þarf að hafa í huga að tryggingaskilmálar eru mismunandi milli félaga. Hér skiptir máli að skoða hvað er bætt og hvað ekki, upphæð sjálfsábyrgðar og bótafjárhæða svo dæmi séu tekin.

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.