Kaupa þarf sérstaka gæludýratryggingu því gæludýr falla utan heimilis- eða fjölskyldutryggingar. Algengastar eru tryggingar vegna hunda, katta og hesta.
Eins og alltaf er gott að kynna sér málin vel áður en trygging er keypt þar sem skilmálar gæludýratrygginga eru mismunandi milli félaga.
Greiðir kostnað við meðferð hjá dýralækni vegna slyss eða veikinda. Tekur ekki til almennrar læknisþjónustu, s.s. vegna tannhirðu eða geldinga katta og hunda.
Bætir útlagðan kostnað vegna lyfja sem dýralæknir ávísar vegna slyss eða veikinda.
Greiðir bætur ef gæludýrið deyr eða týnist.
Bætir tjón sem gæludýrið veldur öðrum, bæði líkams- og munatjón, ef tjónið er að rekja til skaðabótaskyldrar háttsemi umráðamanns.
Greiðir bætur ef dýrið nýtist ekki til fyrirhugaðra nota, s.s. reiðhestar og ræktunarhundar.
Bætir kostnað við gæslu dýrs ef eigandi þarf að leggjast inn á sjúkrahús.
Almennt er ekki hægt að kaupa tryggingu vegna dýrs eftir að það nær tilteknum aldri, oft er miðað við fimm ár. Þá falla sjúkrakostnaðartrygging, líftrygging og afnotamissistrygging almennt úr gildi eftir að tilteknum aldri er náð. .
Þessi trygging tekur til lækniskostnaðar vegna slysa eða veikinda, að frádreginni sjálfsábyrgð. Greiðslur eru almennt takmarkaðar við tiltekna hámarksfjárhæð sem kemur fram í vátryggingarskírteini. Töluverðar undantekningar eru frá greiðsluskyldu. Það sem varðar hunda- og kattaeigendur líklega mestu er að almennt er kostnaður vegna geldinga, arfgengra kvilla, tannhirðu eða tannviðgerða (nema tjón verði á tönnum við slys) ekki bættur. Skilmálar eru nokkuð mismunandi eftir tryggingafélögum og dýrategundum, sérstaklega þegar kemur að hestum. Eins og á við um allar tryggingar er ekki hægt að tryggja eftir á, og ekki eru greiddar bætur vegna sjúkdóma sem voru til staðar við töku tryggingarinnar.
Líftrygging greiðir bætur ef dýr deyr eða týnist. Bætur greiðast þó ekki ef dauða dýrsins má rekja til meðfæddra eða arfgengra sjúkdóma, meðfæddra kvilla eða hrörnunarsjúkdóma, eða annarra ástæðna sem lýst er í skilmálum. Sum tryggingafélög selja ekki líftryggingar vegna hunda og katta nema þau séu með ættbók. Bótafjárhæð miðast við markaðsvirði dýrsins, sem getur verið lítið fyrir óættbókarfærð dýr og fer einnig lækkandi með hækkandi aldri dýrsins.
Afnotamissistrygging greiðir bætur þegar dýr tapar hæfni til tiltekins hlutverks, til dæmis sem ræktunardýr eða reiðhestur. Almennt er það skilyrði fyrir kaupum á afnotamissistryggingu að dýrið sé einnig líftryggt. Afnotamissistrygging er yfirleitt óþörf fyrir hefðbundin gæludýr en gagnleg ef fjárhagstjón hlýst af því að dýrið getur ekki sinnt hlutverki sínu. Tryggingin fellur úr gildi við ákveðinn aldur sem getur verið mismunandi milli tryggingafélaga.
Ábyrgðatrygging greiðir bætur vegna tjóns sem dýrið veldur öðrum ef sannað er að eigandi eða umráðamaður hafi sýnt af sér gáleysi við vörslu dýrsins. Rétt er að benda á að ábyrgðartrygging hunda og katta er oft innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélaga.
Dæmi: Hestur konu fældist, með þeim afleiðingum að hún féll af baki og meiddist, við það að laus hundur gekk að honum í hesthúsahverfi. Nefndin taldi töluvert gáleysi felast í því að hafa lausan hund á hesthúsasvæði enda fælast hestar, sem eru flóttadýr, auðveldlega við að mæta hundi. Var því bótaskylda úr ábyrgðartryggingu hundeigandans til staðar.
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum 251/2024
Umönnunar- eða gæslutrygging greiðir kostnað við gæslu eða umönnun dýrs ef eigandi veikist eða slasast og þarf að leggjast inn á sjúkrahús. Hún tekur þó ekki til allra veikinda eiganda, til dæmis þeirra sem tengjast langvinnum sjúkdómum sem voru til staðar við töku tryggingar eða vegna misnotkunar áfengis eða lyfja.
Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.
Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.