Kæruleiðir

Hvert skal kvarta?

Teikning af dómarahamri
Halldór Baldursson

Neytendur eru ekki alltaf sáttir við svörin sem þeir fá frá tryggingafélögum. Hægt er að leita til Neytendasamtakanna sem geta aðstoðað og ráðlagt um næstu skref.

Ef ekki tekst að leysa úr ágreiningi er hægt leggja mál fyrir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum og tjónanefnd vátryggingafélaganna. Markmið með nefndunum er að leysa úr ágreiningi á skilvirkan og hagkvæman hátt án þess að að leita þurfi til dómstóla.

Tryggingafélögum ber skylda til að kynna nefndirnar fyrir viðskiptavinum sínum komi upp ágreiningur. 

  • Neytandi sem skýtur máli fyrir nefnd kallast málskotsaðili.
  • Þegar máli er skotið fyrir nefnd er talað um málskot.
  • Gjald sem þarf að greiða þegar mál er lagt fyrir nefndina kallast málskotsgjald.
 
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum

Starfssvið nefndarinnar er mjög víðtækt og tekur til nær alls ágreinings sem neytendur geta átt í við tryggingafélög. Húsfélög, fyrirtæki og aðrir aðilar geta einnig sent mál fyrir nefndina.

Neytandi sem vill leggja mál fyrir nefndina þarf fyrst að láta reyna á það hvort tryggingafélagið verði við kröfum hans. Ef tryggingafélagið neitar, eða svarar engu, er næsta skref að senda málið fyrir nefndina. Hér þarf að passa að ekki líði meira en ár frá því að neitun barst frá tryggingafélaginu og þar til mál er lagt fyrir nefndina. 

Neytandi þarf að greiða málskotsgjald en það er endurgreitt ef málið fellur honum í vil. Í gegnum árin hefur verið fallist á kröfur neytenda í um þriðjungi tilvika.

Tryggingafélög geta hafnað því að fara að álitum nefndarinnar en þurfa þá að rökstyðja höfnunina sérstaklega. Þegar svo ber undir er eina úrræði neytenda að sækja rétt sinn fyrir dómi. 

Allar upplýsingar um nefndina má sjá á nefndir.is og einnig er hægt að hringja í símatíma og fá leiðbeiningar hjá starfsmanni nefndarinnar.

 
Tjónanefnd vátryggingafélaganna

Tjónanefnd vátryggingafélaganna tekur eingöngu mál sem varða málsatvik, sök eða sakarskiptingu í tengslum við umferðaróhöpp. Þetta þýðir að deilt er um það hvað gerðist nákvæmlega,  hverjum var um að kenna og hvernig skipta á kostnaði milli tryggingafélaga.

Nefndin starfar á vegum Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og er skipuð fulltrúum tryggingafélaga.

Málsmeðferð er hröð og það kostar ekkert að senda mál fyrir nefndina. Úrskurðir hennar eru ekki bindandi. Algengt er að mál fari fyrst fyrir tjónanefndina og ef neytandi er ekki sáttur við niðurstöðuna getur hann sent málið fyrir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Það er þó hægt að skjóta málum beint til úrskurðarnefndarinnar án viðkomu í tjónanefndinni. Sjá nánar hér.

 

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.