Sumar verslanir bjóða sérstaka tryggingu með sjónvörpum, tölvum, eða öðrum raftækjum. Tryggingin dekkar tjón vegna óhapps svo sem ef farsími dettur á gólfið og skjárinn brotnar eða fartölva verður fyrir rakaskemmdum.Þessi viðbótartrygging er almennt seld með þeim rökum að hún veiti mun lengri ábyrgð en neytendur eiga rétt á lögum samkvæmt. Oft er fólk sett í erfiða stöðu þar sem það stendur við afgreiðslukassann í þann mund að greiða fyrir vöruna. Ákvörðun er því gjarnan tekin undir pressu.
Einnig selja tryggingafélög sérstakar snjalltækjatryggingar sem ná yfir tjón á símum og fartölvum.
Neytendavernd vegna galla
Hér er mikilvægt að hafa í huga að neytendur hafa almennt tveggja ára kvörtunarfrest reynist vara gölluð. Ef vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími (þvottavél, þurrkari o.s.frv.) er fresturinn 5 ár. Neytendur eru því þegar „tryggðir“ reynist vara gölluð.
Heimilistrygging gæti dugað
Viðbótartrygging nær almennt yfir tjón vegna óhapps, þjófnaðar og bilana. En það gæti heimilis- eða fjölskyldutrygging, og innbústrygging og innbúskaskótrygging einnig gert. Í tilfelli viðbótartrygging er engin krafa gerð um sjálfsábyrgð ólíkt hemilistrygginu. Hver og einn þarf að meta hvort að viðbótartrygging er góður kostur. Gott er að hafa eftirfarandi í huga:
Svör við framagreindu finnur þú í skilmálum tryggingarinnar eða með því að hafa samband við vátryggingarfélagið.
Tryggingar hjá bílaleigum
Þegar bílaleigubíl er bókaður erlendis er rétt að kanna hvort tryggingaverndin sé nægileg. Kannaðu hvort að þú sért með ferða- eða kortatryggingu sem nær yfir leigu á bílaleigubíl. Korthafar greiðslukorta eru í mörgum tilfellum með kaskótryggingu fyrir bílaleigubíla erlendis. Slíkar tryggingar geta gert aðrar tryggingar óþarfar. Í sumum tilvikum gæti það jafnvel skemmt fyrir að taka sérstaka tryggingu hjá bílaleigunni þar sem korta- eða ferðatryggingar falla þá niður.
Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.
Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.