Ferðatryggingar

Ferðatryggingar bæta ýmis konar tjón á ferðalögum, svo sem slys, veikindi, þjófnað og tjón á farangri. Tryggingin getur einnig bætt tjón þegar afbóka þarf ferð.

Ferðatryggingar - teikning af ferðamönnum
Halldór Baldursson

Ferðatrygging er innifalin í árgjöldum flestra kreditkorta en það fer eftir kortategund hversu víðtæk tryggingin er. Ferðatryggingar er einnig hægt að kaupa sérstaklega hjá tryggingafélögunum og þá yfirleitt sem valkvæða viðbót við fjölskyldu- eða heimilistryggingar. Þær eru að miklu leyti sambærilegar við kreditkortatryggingar.

Skoðaðu skilmála áður en viðbótartrygging er keypt.

Tegund tjóns

Ef þú veikist eða lendir í slysi og kemst ekki í ferðina vegna þess bætir ferðatrygging þér kostnaðinn, þó oftast bara upp að ákveðinni upphæð. Leggja þarf fram læknisvottorð um óferðarfærni til að fá ferðakostnað bættan.

Ferðatryggingin greiðir einnig bætur ef hætta þarf við ferð vegna andláts, alvarlegra veikinda eða alvarlegs slyss nákominna. Tryggingin getur líka náð yfir önnur alvarleg atvik sem eru tilgreind í skilmálum.

Almennt eru bara greiddar bætur vegna fargjalds og gistikostnaðar. Ef þú keyptir til dæmis miða í leikhús eða á fótboltaleik erlendis fæst sá kostnaður yfirleitt ekki bættur. Það sama gæti átt við um kostnað vegna leiðsagnar og fararstjórnar. Upplýsingar um það hvað fæst bæst og hvað ekki má sjá í skilmálum tryggingafélaga.

Forföll vegna veikinda eru ekki bætt ef um er að ræða veikindi sem voru til staðar áður en ferðin var keypt. Þetta getur haft þau áhrif að fólk sem þjáist af langvarandi sjúkdómum fær ekki bætur vegna ferðar sem það kemst ekki í vegna þess að veikindi versna eða taka sig upp. Í skilmálum má finna upplýsingar um þau atriði sem geta leitt til þess að bótaréttur falli niður. Slíkt gæti til dæmis átt við ef þú hefur sótt meðferð vegna veikindanna á síðustu sex eða tólf mánuðum fyrir kaup á ferðinni. Það er tryggingafélagið sem þarf að sýna fram á að veikindin hafi verið til staðar. Mál af þessu tagi rata oft fyrir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum: 

Dæmi: Kona komst ekki í utanlandsferð vegna mikillar versnunar á veikindum sem hún hafði þjáðst af um árabil. Þar sem læknisvottorð staðfesti að konan hafði leitað meðferðar vegna veikinda sinna á mánuðunum áður en ferðin var keypt átti hún ekki rétt á bótum. 

Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum 175/2022

Ferðatrygging greiðir bætur vegna sjúkrakostnaðs, þar með talið vegna sjúkrahúslegu og lyfja slasist vátryggður eða veikist erlendis. Í skilmálum kemur fram hvenær undanþágur á greiðslu eiga við. Það gæti til dæmis verið ef um er að ræða meðferð vegna veikinda sem voru til staðar á síðustu mánuðum fyrir kaup á ferðinni.

Dæmi: Kona komst ekki í utanlandsferð vegna mikillar versnunar á veikindum sem hún hafði þjáðst af um árabil. Þar sem læknisvottorð staðfesti að konan hafði leitað meðferðar vegna veikinda sinna á mánuðunum áður en ferðin var keypt átti hún ekki rétt á bótum. 

Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum 175/2022

Ferðarofstrygging greiðir bætur ef þú þarft að fara fyrr heim úr ferð til dæmis vegna andláts, alvarlegra veikinda eða slysa ættingja heima. Greidd eru viðbótarútgjöld vegna heimferðar en það gæti verið kaup á nýjum flugmiða eða gjald vegna breytinga á flugmiða.

Það telst ekki ferðarof ef veikindi valda því að fólk geti ekki notið ferðarinnar eins og til stóð. Sem dæmi; ef ferðalangur er of veikur til að stunda skíði eða golf er það ekki bótaskylt tjón, þ.e. tjón sem tryggingafélagi ber að bæta.

Ferð fæst almennt endurgreidd úr ferðatryggingu, í heild eða að hluta, þurfir þú að að fara heim vegna veikinda eða slyss eða liggja á sjúkrahúsi erlendis. Rétt er að ítreka nauðsyn þess að tilkynna tryggingafélagi og SOS international um alvarleg slys eða veikindi sem koma upp á ferðalagi.

Farangurstrygging bætir farangur sem skemmist, týnist, er stolið eða tefst í flutningi. Það er nokkuð mismunandi hversu víðtækar farangurstryggingar eru. Einnig skiptir máli hvernig varúðarreglur eru orðaðar í skilmálum.

Gott er að hafa í huga að peningar og greiðslukort teljast ekki til farangurs og fást því ekki bætt þótt þau glatist. Nokkuð oft hefur reynt á það fyrir úrskurðarnefndinni hvort tryggingafélagi beri að bæta tjónið þegar farangri er stolið. Helst deilt um það hvort varúðarreglum skilmálanna hafi verið fylgt.

Dæmi: Maður á ferðalagi skildi töskur sínar eftir í bifreið yfir nótt. Um morguninn voru töskurnar horfnar en engin sýnileg merki um innbrot. Út frá gögnum málsins taldi nefndin ósannað að bifreiðin hefði verið læst og því hefði maðurinn skilið verðmæti eftir næturlangt í ólæstri bifreið. Þó hann hefði þannig brotið gegn varúðarreglum taldi nefndin rétt að hann fengið bætur að hluta, eða 1/3. 

Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum 358/2023

Ef þú lendir í því að eigum þínum er rænt á ferðalagi er mjög mikilvægt að geta sýnt fram á að þjófnaður hafi átt sér stað. Sá sem verður fyrir tjóni þarf almennt að sýna fram á tjónið og orsök þess. Sem dæmi má nefna að í máli sem fór fyrir úrskurðarnefndina var bótaskyldu hafnað þar sem neytandi gat ekki sýnt fram á að síma hans hefði verið stolið. Engin lögregluskýrsla eða önnur sambærileg gögn lágu nefnilega fyrir. 

Ekki allt bætt

Eins og gildir um allar tryggingar eru fjölmargir fyrirvarar í skilmálum tryggingafélaga. Það er því ekki svo að allt tjón sem tengist ferðalögum sé bætt. Bætur geta einnig skerst, eða fallið niður ef neytandi sýnir af sér gáleysi, fylgir ekki varrúðarreglum eða tjóni er valdið af ásetningi (viljandi). Ef skilmálar tryggingafélags eru óljósir ber að túlka þá neytanda í hag. Neytendur geta leitað til úrskurðarnefndar um vátryggingamál ef uppi er ágreiningur við tryggingafélag.

 

Veikindi eða slys á ferðalagi

–  mikilvægt að tilkynna strax!

Ferðatrygging felur í sér neyðarþjónustu með sólarhringsvakt hjá SOS International. Það er fyrirtæki sem sérhæfir sig í neyðaraðstoð fyrir ferðamenn um allan heim. Alvarleg veikindi eða slys þarf að tilkynna strax til bæði tryggingafélags og SOS International. Ef það er ekki gert  getur það leitt til þess að engar bætur fáist greiddar þó fólk komi fyrr heim úr ferðalagi en það ætlaði sér vegna veikinda eða slysa.

Fleiri þættir

Í flestum tryggingum greiðir tryggingataki hluta tjónsins sjálfur. Þetta er kallað eigin áhætta eða sjálfsábyrgð og dregst hún frá bótum eða er innheimt sérstaklega.

Dæmi: Ef sjálfsábyrgð er 75.000 kr. og tjón 300.000 kr., greiðir þú 75.000 kr. og tryggingafélagið 225.000 kr. Sé tjónið lægra en sjálfsábyrgðin fást engar bætur.

Öll tryggingafélög eru með  varúðarreglur í skilmálum sínum. Varúðarreglur segja til um hegðun sem þú, sem vátryggður, skalt viðhafa til að koma í veg fyrir, eða draga úr líkum á tjóni. Ef varúðarreglum er ekki fylgt getur það leitt til þess að bætur vegna tjóns skerðast eða falla niður, svo sem; þú gætir ekki farangurs þíns nógu vel eða þú missir af tengiflugi því tímamörk eru þrengri en ráðlagt er.

Evrópska sjúkratryggingakortið skal alltaf vera með í för þegar ferðast er innan EES landanna. Það veitir rétt til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Sjá nánar á island.is.

Ef ferðast er til landa þar sem sjúkrakostnaður getur verið gríðarlega hár, líkt og í Bandaríkjunum, er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Í slíkum tilfellum gæti borgað sig að vera bæði með kortatryggingu og valkvæða ferðatryggingu því ef hámarksbótafjárhæð er náð í annarri tryggingunni tekur hin tryggingin við.  

Ferðatryggingar gilda almennt bara í ákveðinn tíma á ferðalagi erlendis, yfirleitt í tvo eða þrjá mánuði. Ætli fólk að dvelja lengur er mikilvægt að skoða hvort hægt sé að framlengja gildistímann eða kaupa sérsniðna ferðatryggingu. 

Ferðatrygging tryggingafélags: Maki og öll börn á sama lögheimili óháð aldri. Einnig börn yngri en 18 ára þótt þau séu með annað lögheimili hér á landi.

Ferðatrygging á kreditkort: Börn eru yfirleitt tryggð til 23 ára, stundum lengur ef þau ferðast með korthafa. Reglurnar geta verið mismunandi eftir kortategund.

Samkvæmt lögum um vátryggingasamninga þarf að tilkynna um tjón innan árs frá því að þú vissir um tjónið. Sé það ekki gert fellur réttur til bóta niður.

Ef tryggingafélag hafnar kröfunni eða skerðir bætur má skjóta málinu til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum eða dómstóla innan árs frá tilkynningu félagsins. Ef það er ekki gert innan þess tíma stendur ákvörðun félagsins óhögguð. 

Það er alltaf góð regla að tilkynna um tjón sem fyrst.  Því miður eru mörg dæmi um að bótaréttur hafi fallið niður vegna þess að frestur til að tilkynna tjón var liðinn – jafnvel þótt ekki sé deilt um rétt til bóta.

Gott að hafa í huga:

Veikindi sem voru til staðar fyrir ferð geta útilokað bókarétt, sérstaklega ef meðferð fór fram á síðustu 6-12 mánuðum fyrir greiðslu staðfestingargjalds. Alvarleg veikindi eða slys þarf að tilkynna strax til tryggingafélags og SOS International.Bætur geta skerst eða fallið niður ef þú ferð ekki eftir varúðarreglum í skilmálum.

  • Ef þú sýnir af þér stórkostlegt gáleysi og það leiðir til tjóns, eða eykur tjónið, geta bætur skerst eða þær falla niður.
  • Almenna reglan er að skilmálar gilda, en óljós ákvæði skulu túlkuð neytanda í hag.
  • Tjónþoli þarf að sýna fram á tjón til dæmis með læknisvottorði eða lögregluskýrslu.
    Tilkynna þarf um tjónið innan árs frá því þú vissir af því. Ef félag hafnar kröfunni þarf að leita til úrskurðanefndar eða dómstóla innan árs.

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.