Netkaup – endurkrafa

Ef vara sem keypt er með korti skilar sér ekki gætir þú átt rétt á endurkröfu.
iStock.com/Gang Zhou

Eitt helsta umkvörtunarefnið þegar kemur að netverslunum er seinkun á afhendingu og jafnvel að varan skili sér aldrei. Í slíkum tilfellum getur reynst erfitt að hafa hendur í hári seljanda.

Neytendur eru þó ekki varnarlausir því þegar greitt er með korti er í mörgum tilvikum hægt að fá greiðsluna til baka með svokallaðri endurkröfu (e. chargeback).

Afhending dregst – hafðu samband við seljanda

Ef afhending dregst er fyrsta skrefið að hafa samband við seljanda og kalla eftir svörum. Mikilvægt er að gera það skriflega svo samskiptin séu skjalfest. Gefi seljandi ekki upp netfang en býður upp á fyrirspurnarform á vefnum skaltu taka afrit af skilaboðunum og vista það.

Hvernig virkar endurkröfuferli?

Ef útlit er fyrir að seljandi muni ekki afhenda vöruna þarftu að grípa til aðgerða og fara fram á endurkröfu. Kröfunni beinir þú að viðskiptabanka þínum eða þeim aðila sem gaf út kortið sem notað var við kaupin. Á vefsíðum bankanna má finna sérstakt endurkröfuform sem fylla þarf út.

Bankinn kallar eftir öllum samskiptum við seljanda og því er mikilvægt að hafa þau tiltæk. Þegar endurkröfuferli er hafið fær seljandi tækifæri til að svara kröfunni. Svari hann ekki, eða veitir ósannfærandi svör, er vafinn túlkaður neytandanum í hag.

Endurkröfuferli getur átt við þegar afhending dregst, eins og áður segir, en einnig ef seljandi er gjaldþrota, verslunin er horfin af veraldarvefnum eða vara, sem neytandi skilaði innan skilafrests, fæst ekki endurgreidd.

Hvenær er rétt að bregðast við?

Stundum getur reynst erfitt að meta hvort varan muni á endanum skila sér, sér í lagi ef samskipti við seljanda eru í gangi. En hvað er eðlilegt að bíða lengi?

Það er alltaf ráðlagt að kvarta fyrr en síðar. Frestur til að gera endurkröfu í málum sem þessum er þó að jafnaði 90–120 dagar, allt eftir kortafyrirtæki. Hafni banki endurkröfu má skjóta málinu til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Í þeim málum sem hafa farið fyrir nefndina hafa tímafrestir samkvæmt skilmálum kortafyrirtækja og viðskiptaskilmálum bankanna verið lagðir til grundvallar.

Góð ráð við netverslun

  • Ekki draga að hafa samband við seljanda og kalla eftir svörum.
  • Hafðu öll samskipti við seljanda skrifleg og geymdu afrit.
  • Gerðu endurkröfu fyrr en síðar.
  • Aldrei millifæra á seljanda. Greiðsla með korti opnar möguleika á endurkröfu ef eitthvað fer úrskeiðis.

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Ef vara sem keypt er með korti skilar sér ekki gætir þú átt rétt á endurkröfu.
Jurtamjólk er samheiti yfir fjölbreytta flóru jurtadrykkja sem getur verið kærkominn kostur fyrir fólk með laktósaóþol.
Viðskiptahættir Booking.com hafa verið undir smásjánni.

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.