Batterí í brennidepli

Eldur getur kviknað út frá rafmagnstækjum og slíkum eldsvoðum fer fjölgandi. Það er þó hægt að lágmarka áhættuna.
iStock,com/Just_Super

Eldsvoðum af völdum endurhlaðanlegra liþíumrafhlaðna hefur fjölgað á undanförnum árum. Þessa þróun má helst rekja til aukinnar sölu á raftækjum sem innihalda slíkar rafhlöður. Í fréttum hefur mest borið á alvarlegum atvikum þar sem kviknað hefur í út frá rafmagnshlaupahjólum en önnur raftæki á borð við farsíma, spjaldtölvur og rafhjól hafa einnig komið við sögu.

Hleðslutæki og hlaupahjól

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu greindi frá tveimur alvarlegum atvikum árið 2024 þar sem eldur kviknaði út frá raftækjum sem innihalda liþíumrafhlöður. Annars vegar kviknaði eldur í rafmagnshlaupahjóli sem var í hleðslu á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin var orðin alelda þegar slökkviliðið mætti á staðinn og var þremur einstaklingum bjargað af svölum íbúðarinnar. Íbúðin var rjúkandi rúst þegar loksins náðist að slökkva eldinn. Í hinu tilvikinu kviknaði eldur út frá símahleðslutæki sem var uppi í rúmi hjá 12 ára dreng, með þeim afleiðingum að herbergið gjöreyðilagðist.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins telur að 50 eldsvoða, á árunum 2019 til 2024, megi rekja til minni raftækja á borð við rafmagnshlaupahjól, rafhjól og farsíma. Sömu þróun má greina á Norðurlöndunum, en í Danmörku hefur eldsvoðum út frá minni raftækjum fjölgað mikið. Þar eru rafgeymar og rafhjól algengasta ástæðan fyrir útköllum. Dæmi eru um að það kvikni í liþíumrafhlöðum sem ekki eru í hleðslu.  Líkur á eldsvoða aukast ef rafhlaðan er af litlum gæðum, hefur orðið fyrir hnjaski eða er ekki geymd við réttar aðstæður. Liþíumrafhlöður eru almennt öruggar ef þær eru notaðar á réttan hátt. „Aðalmálið er að brunavarnir séu í lagi á heimilinu, reykskynjari í öllum rýmum, handslökkvitæki við flóttaleið og eldvarnarteppi í eldhúsinu. Einnig er mikilvægt að allir íbúar þekki flóttaleið á sínu heimili eða íverustað“ segir Guðlaug Kristín Pálsdóttir, sérfræðingur á sviði brunavarna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Liþíumrafhlöður hafa ýmsa góða kosti sem skýrir vinsældir þeirra:

  • Auðvelt að hlaða við lágan straum
  • Hlaðast hratt
  • Eru léttar og geyma mikla orku
  • Halda orku mjög vel
  • Þola margar hleðslur og afhleðslur

Ókostirnir eru þessir helstir:

  • Eru viðkvæmar fyrir frosti og háum hita
  • Þurfa vandaða rafrás til að stýra straumi og spennu
  • Geta gefið frá sér brennanlegar lofttegundir
  • Geta brunnið og jafnvel sprungið, t.d. vegna skammhlaups í rafrás
  • Getur verið erfitt að slökkva eld í þeim
  • Eru viðkvæmar fyrir höggum

Af hverju stafar eldhættan?

Eldfimi liþíumrafhlaðna stafar fyrst og fremst af efnasamsetningunni og orkunni sem þær geyma. Á sama tíma og eiginleiki þeirra til að geyma mikla orku í léttu formi gerir þær að vinsælum kosti innihalda liþíumrafhlöður hvarfgjörn og eldfim efni sem geta valdið öryggishættu ef þær eru ekki geymdar við réttar aðstæður eða verða fyrir hnjaski.

Ofhitnun rafhlaðna getur valdið efnaviðbrögðum sem leiða til skammhlaups í rafrás og eftir atvikum hitauppsöfnunar, bruna, gaslosunar og hugsanlegrar sprengingar. Það stafar aðallega af tveimur efnasamböndum; annars vegar vetnisflúoríði (HF) og hins vegar fosfórflúoríði (POF3). Þá er rétt að taka fram að jafnvel þó að skammhlaup eigi sér ekki stað getur skemmd rafhlaða leyst frá sér eldfim efni og eitraðar lofttegundir.

Þegar liþíumrafhlöður brenna getur efnafræðileg uppsöfnun og niðurbrot leitt til myndunar flúorsýru (HF), sem er að hluta til ástæðan fyrir hættunni sem felst í bruna rafhlaðanna. Þá getur flúorsýra í gasformi (POF3) einnig leyst í andrúmsloftið, en hún er mjög eitruð og getur valdið alvarlegum skemmdum á öndunarfærum og öðrum líffærum. Fljótandi gas getur verið lífshættulegt en það er bæði lyktarlaust og ósýnilegt fyrir mannsauganu.

Hafðu í huga!

  • Ekki hlaða þegar allir eru sofandi
  • Ekki hlaða nálægt eldfimum efnum
  • Ekki hlaða með skemmdri snúru eða hlaða skemmda rafhlöðu
  • Ekki breiða yfir hleðslubúnað eða rafhlöðuna
  • Ekki hlaða í frosti eða miklum hita
  • Ekki ofhlaða
  • Ekki hlaða tæki í flóttaleið eða útgönguleið
  • Hlaðið þar sem reykskynjari er til staðar
  • Hlaðið á afviknum stað, t.d. í bílskúr eða hjólageymslu
  • Hlaðið á flötu óbrennanlegu undirlagi
  • Notið upprunalegar rafhlöður og hleðslutæki sem fylgir raftækinu

Á vertueldklar.is má finna góðar upplýsingar um brunavarnir heimilisins.

Neytendablaðið vor 2025
Heimildir í grein: HMS, Vísindavefurinn

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Viðskiptahættir Booking.com hafa verið undir smásjánni.
Þrátt fyrir að stjörnugjöf geti verið gagnlegur leiðarvísir við val á gistingu er rétt að taka henni með fyrirvara

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.