Dýr er dropinn

Ólífuolía er mjög misjöfn að gæðum og hún er viðkvæm fyrir hita og birtu.
sebra/Shutterstock.com

Heimsmarkaðsverð á ólífuolíu hefur hækkað undanfarin ár. Hæst er verðið á extra jómfrúarolíu en neytendur fá þó ekki alltaf það sem þeir borga fyrir.

Sænska neytendablaðið Råd och Rön gerði gæðakönnun á 20 tegundum af extra jómfrúarolíu sem fást í sænskum matvöruverslunum. Flestar tegundir komu frá Spáni, Ítalíu, Grikklandi og Túnis. Sex tegundir voru merktar með uppruna frá Evrópusambandinu en ekki er skylt að merkja upprunaland ólífuolíu.

Ólífuolía er flokkuð eftir gæðum og trónir extra jómfrúarolía á toppnum. Jómfrúarolía er pressuð mjög fljótlega eftir uppskeru án þess að til komi hitameðhöndlun eða notkun nokkurra efna. Hún er því mjög lítið unnin og er mun dýrari en hefðbundin ólífuolía. Það hvort olían flokkast sem extra jómfrúarolía eða jómfrúarolía fer aðallega eftir sýrustiginu. Því lægra sýrustig því meiri gæði.

Bragðgæði metin

Råd och Rön fékk vottaða ólífuolíusmökkunarsérfræðinga (já, þeir eru til) til að meta þær tuttugu tegundir sem teknar voru til skoðunar. Sýni voru einnig send á rannsóknarstofu þar sem sýruinnihald var mælt. Markmiðið var að skera úr um hvort olíurnar gætu í raun flokkast sem extra jómfrúarolía eða hvort brögð væru í tafli. Bestu einkunnir fengu olíur frá Coop, De Cecco, Zeta, Ica, Fontana og Monini. Fjórar tegundir voru hins vegar taldar falla í flokkinn jómfrúarolía, þ.e. án extra formerkisins. Byggðist það að mestu leyti á áliti smakkaranna sem töldu bragðið alls ekki uppfylla þau skilyrði sem gerð eru til extra jómfrúarolíu. Þá voru tvær tegundir – önnur spænsk og hin frá Túnis – flokkaðar sem bómolía. Það er ólífuolía af litlum gæðum, með hátt sýruinnihald og ekki ætluð til manneldis. Þráabragð var af báðum þessum olíum og sú spænska, La Española, féll einnig á efnaprófinu, þar sem sýrustigið var of hátt.

Það sem helst ógnar gæðum ólífuolíu er oxun sem veldur þráa. Í gæðaprófunum skiptir smökkun því miklu máli, því það er auðveldasta leiðin til að greina þráa.

Þýsku neytendasamtökin Stiftung Warentest gerðu sams konar gæðakönnun á síðasta ári. Af 19 tegundum sem seldar voru sem extra jómfrúarolía stóðust sex ekki kröfur. Stiftung Warentest hafa gert sambærilegar kannanir um árabil og segir talsmaður samtakanna að gæðin fari minnkandi. Of mikið af ólífuolíu sem ekki flokkast sem extra jómfrúarolía sé seld sem slík.

Að sjálfsögðu hafa ítölsku neytendasamtökin Altroconsumo einnig látið málið til sín taka. Í könnun sem gerð var 2021 voru 30 tegundir skoðaðar. Í öllum tilfellum var sýruinnihald innan marka, en bragðsérfræðingar mátu að 11 tegundir stæðust ekki kröfur um extra jómfrúarolíunafngift. Mjög var vandað til verka og voru þrír óháðir bragðsérfræðingahópar fengnir að málum, þar af einn viðurkenndur af alþjóða ólífuolíuráðinu.

Eftirlitið mikið

Erica Fiume, heilbrigðisfulltrúi í Stokkhólmi, segir í samtali við Råd och Rön að engin matvara í Evrópu undirgangist jafn mikið eftirlit og ólífuolía. Ástæðan er sú Evrópa á met í  bæði framleiðslu og neyslu á ólífuolíu. Það eru því miklir hagsmunir í húfi.

Í Evrópu eru gerð um 2.600 ólífuolíupróf á hverju ári, þar af um tólf í Svíþjóð. Erica Fiume segir að engin tilfelli hafi komið upp í Svíþjóð þar sem önnur tegund jurtaolíu leynist í flöskunum. Hins vegar sé algengast að olía sem seld er sem extra jómfrúarolía sé það svo ekki í raun og veru, rétt eins og gæðakannanir hafi leitt í ljós. Sjálf mælir hún með því að neytendur kaupi ólífuolíu sem er merkt með upprunalandi svo sem Ítalíu, Spáni eða Grikklandi.

Alþjóðlega ólífuráðið gefur neytendum góð ráð:

  • Ekki kaupa meiri ólífuolíu í einu en þú munt neyta á einu ári. Ólíkt til dæmis rauðvíni þá skemmist olífuolía með tímanum. Ef olían er geymd of lengi þránar hún og verður óæt.
  • Ólífuolía er viðkvæm fyrir birtu og því skal geyma hana á dimmum stað. Ílát úr dökku gleri henta best. Ef olían er geymd uppi á borðum í gegnsæju íláti/glerflösku, ætti að hylja hana, t.d. með álpappír.
  • Ólífuolía er einnig mjög viðkvæm fyrir hita og ætti að geyma hana við 13–25 gráðu hita. Óhætt er að geyma ólífuolíu í ísskáp og það getur jafnvel hindrað þránun. Olían þarf þó smátíma á eldhúsbekknum til að komast aftur í fljótandi form.
  • Gakktu úr skugga um að lokið sé innsiglað með loftþéttu loki. Þegar búið er að opna flöskuna ætti að neyta olíunnar sem fyrst en í síðasta lagi innan þriggja mánaða.
  • Eftir að flaska hefur verið opnuð getur verið gott að tryggja eins lítið „loftbil“ og hægt er því ólífuolía er viðkvæm fyrir súrefni. Þetta þýðir að ef keypt er stór flaska og farið er að ganga á hana er ráðlagt að hella olíunni í minna ílát.
Neytendablaðið vor 2025

 

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Viðskiptahættir Booking.com hafa verið undir smásjánni.
Þrátt fyrir að stjörnugjöf geti verið gagnlegur leiðarvísir við val á gistingu er rétt að taka henni með fyrirvara

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.