Ekið um Ítalíu – reikningur kom ári síðar

Ferðalangar á framandi slóðum geta fengið sektir vegna umferðarlagabrots löngu eftir ferðalagið. Hvað er þá til ráða?
iStock.com/bwzenith

Þegar ferðaskrifstofur fóru að bjóða upp á „flug og bíl“ snemma á níunda áratugnum þótti það tíðindum sæta. Þessi ferðamáti varð fljótt vinsæll enda fylgdi honum áður óþekkt frelsi, eða eins og Ferðamiðstöðin orðaði það í auglýsingu: „Frjáls sem fuglinn í flug og bíl“.

Í dag er bílaleigubíllinn gjarnan órjúfanlegur hluti ferðalagsins. Þótt oftast gangi allt að óskum geta neytendur lent í margs konar ágreiningi við bílaleigur og fer Evrópska neytendaaðstoðin á Íslandi ekki varhluta af því. Stundum fá ferðalangar óvænta reikninga vegna rispu eða skemmda á bílnum þegar heim er komið. Þeir geta einnig fengið innheimtukröfur vegna bílastæðagjalda, eins og alkunna er, eða sektir vegna umferðarlagabrota.  Það getur verið erfitt að verjast slíkum kröfum og því er sú aðstoð sem Evrópska neytendaaðstoðin veitir mjög mikilvæg.

Dýr heimsókn til Lucca

Evrópska neytendaaðstoðin í Danmörku fékk á dögunum áhugavert mál á sitt borð. Bent nokkur leigði bíl á Ítalíu ásamt eiginkonu sinni og ákváðu þau að stoppa stutt í borginni Lucca. Hjónin tóku eftir ítölsku skilti þegar þau keyrðu inn fyrir borgarmörk Lucca en veltu því ekki sérstaklega fyrir sér. Skiltið markaði hins vegar upphaf svokallaðs umhverfissvæðis sem eingöngu íbúar eða bílar sem fengið hafa sérstaka undanþágu mega keyra um. Slík svæði eru töluvert algeng víðs vegar um Ítalíu en þeim er ætlað að draga úr umferð og mengun í sögulegum miðbæjum á Ítalíu. Brot á þessum reglum getur leitt til sektar en reikningurinn getur látið bíða eftir sér eins og Bent komst að.

Ári eftir að hjónin komu heim úr fríinu fékk Bent sent bréf í pósti og honum gert að gera upp sekt vegna umferðarlagabrots. Þar sem langt var um liðið leit Bent á bréfið sem áminningu en ekki sektarkröfu. Þrátt fyrir skrifleg mótmæli, sem ítölsk yfirvöld svöruðu ekki, bárust fleiri kröfubréf sem Bent láðist að greiða.

Krafan lifir í tíu ár

Það er ekki óalgengt að það taki mánuði, eða jafnvel ár, frá því umferðarlagabrot á sér stað og þar til krafa berst ökumanni. Það getur verið óþægilegt, enda erfitt að rifja upp málavexti þegar langt er um liðið. Þá er ökumönnum sem ferðast á framandi slóðum ekki alltaf ljóst að þeir hafi yfirhöfuð framið lögbrot. Á Ítalíu er fyrningarfrestur umferðarlagabrota heil 10 ár, og geta ökumenn því hæglega fengið sekt í hausinn nokkrum árum eftir að hafa brotið af sér. Þess má geta að hér á landi er fresturinn fjögur ár.

Bent var hætt að lítast á blikuna, enda héldu innheimtubréfin áfram að berast. Hann leitaði því  til Evrópsku neytendaaðstoðarinnar í Danmörku sem tók málið til skoðunar. Niðurstaðan var sú að ekki væri annað í stöðunni en að greiða sektina og innheimtugjöldin sem höfðu lagst ofan á kröfuna. Bent greiddi því á endanum langtum hærri upphæð en ef hann hefði brugðist við strax. Bent mælir því með því að fólk taki þessum innheimtubréfum alvarlega og leiti aðstoðar hjá Evrópsku neytendaaðstoðinni.

 

Hvað er til ráða?

Ef yfirvöld geta sýnt fram á það að þú hafir keyrt á umhverfissvæði, svo sem með myndefni, þá er mælt með því að greiða sektina um leið. Annars er hætta á að krafan safni dráttarvöxtum og innheimtukostnaði. Málsókn gæti fylgt í kjölfarið.

Ef þú telur þig ekki hafa keyrt á umhverfissvæði eða telur reikninginn rangan, til dæmis þar sem þú hefur nú þegar greitt sektina eða varst ekki að keyra bílinn umrætt sinn, skaltu senda innheimtuaðilanum bréf og mótmæla kröfunni. Það er þá á hans ábyrgð að sýna fram á brotið.

 

Góð ráð þegar keyrt er um Ítalíu

Fylgstu sérstaklega vel með skiltunum (Zona Traffico Limitato – ZTL) sem marka upphaf umhverfissvæða. Þar eru eftirlitsmyndavélar sem taka sjálfkrafa mynd af skráningarnúmeri bílsins og ef þú ert ekki með skráð leyfi fyrir bílnum þarftu að greiða sekt.

iStock.com/Jarreta

Vanalega er ferðamönnum óheimilt að keyra um slík svæði á milli 08.00 og 18.00, en reglur kunna að vera mismunandi á milli borga og bæja.

  • Ef þú þarft að geta ekið inn í borgir á Ítalíu, til dæmis vegna fötlunar, þarftu að sækja um sérstakt leyfi hjá borgaryfirvöldum.
  • Ef þú hefur bókað hótel sem er staðsett innan takmarkaðs aksturs- eða umhverfissvæðis, er yfirleitt hægt að hafa samband við hótelið og biðja það um að senda skráningarnúmer bílsins til viðeigandi yfirvalda. Mikilvægt er að sækja um heimild áður en ekið er inn á svæði.
  • Óskaðu eftir upplýsingum frá bílaleigunni þinni um afmörkuð umhverfissvæði. Sumar bílaleigur bjóða upp á skráningu gegn gjaldi.

Margar ítalskar borgir eru með afmörkuð bílastæði fyrir utan umhverfissvæðin þar sem hægt er að leggja. Þá er hægt að ganga eða nota almenningssamgöngur inn á umhverfissvæðið.

Um það bil 300 borgir og bæir á Ítalíu eru með sérstök umhverfissvæði og reglurnar geta verið breytilegar á hverjum stað fyrir sig. Í Mílanó þarf til dæmis að greiða sérstakan mengunarskatt ef ekið er inn í miðbæinn. Til þess þarf að kaupa aðgangspassa (ecopass) sem kostar á bilinu 2–10 evrur á dag og er hægt að nálgast í sjálfsafgreiðsluvélum víðs vegar um borgina.

Neytendablaðið haust 2025

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Viðskiptahættir Booking.com hafa verið undir smásjánni.
Þrátt fyrir að stjörnugjöf geti verið gagnlegur leiðarvísir við val á gistingu er rétt að taka henni með fyrirvara

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.