Hvað er pakkaferð?

Réttarstaða þeirra sem kaupa pakkaferð er ríkari en þeirra sem kaupa t.d. flug sér og gistingu sér á eigin vegum.
iStock.com/Adivin

Pakkaferð er samsettur pakki sem inniheldur allavega tvö atriði af eftirtöldu: flutning, gistingu eða aðra þjónustu við ferðamenn sem tekur til verulegs hluta ferðarinnar. Þá er það skilgreiningaratriði að þjónustan taki til allavega 24 klukkustunda eða að í henni felist gisting.

Dæmigerð sólarlandaferð sem keypt er í einum pakka (iðulega flug og gisting og jafnvel hálft eða fullt fæði) telst því t.a.m. vera pakkaferð. 

Um pakkaferðir gilda sérstök lög sem Neytendastofa hefur eftirlit með. Lögin byggja á sérstakri Evróputilskipun um pakkaferðir, sem var sett í þeim tilgangi að samræma reglur aðildarríkjanna um pakkaferðir, og má því ætla að réttindi neytenda við kaup á pakkaferð séu sambærileg í öllum aðildarríkjum EES. 

Ferðamönnum er m.a. tryggð ýmis vanefndaúrræði ef ferðin er ekki eins og um var samið en gott er að hafa í huga að hafi neytendur eitthvað við framkvæmd pakkaferðar að athuga er ákaflega mikilvægt að kvarta strax við fararstjóra eða ferðasala.

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Jurtamjólk er samheiti yfir fjölbreytta flóru jurtadrykkja sem getur verið kærkominn kostur fyrir fólk með laktósaóþol.
Viðskiptahættir Booking.com hafa verið undir smásjánni.
Þrátt fyrir að stjörnugjöf geti verið gagnlegur leiðarvísir við val á gistingu er rétt að taka henni með fyrirvara

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.