Kanill ekki sama og kanill

Kanill getur verið heilsuspillandi í miklu magni en tegundin skiptir máli.
iStock.com/baibaz

Kanill er vinsælt og bragðgott krydd sem hefur verið notað sem lækningajurt í gegnum aldirnar. Kanill er unninn úr innri berki trjáa af ættkvíslinni Cinnamonum og eru cassía og ceylon algengustu tegundirnar. Cassía-kanill er mun ódýrari og langtum algengari en ceylon-kanill. Cassía er líka bragðmeiri og dekkri og inniheldur meira magn af efninu kúmarín. Bragðið af ceylon-kanil er mildara og þykir sætara. Oft er talað um ceylon sem hinn raunverulega kanil og er hann alla jafna vel merktur í verslunum.

Í gæðakönnun sem sænsku neytendasamtökin Råd och Rön gerðu voru bragðgæðingar fengnir til að meta 14 kaniltegundir sem fást í sænskum verslunum. Cassía-kanill kom almennt mun betur út úr þessum bragðprófunum en ceylon-kanill og þótti bragðmeiri og „kanillegri“ á bragðið.

 

Ciprian/Shutterstock.com

Cassia- kanill er að mestu ræktaður í Indónesíu, Víetnam og á Indlandi. Ceylon-kanill er ræktaður á Sri Lanka. Kanill er unninn þannig að berkinum er flett af trjánum, hann skafinn og svo þurrkaður. Þannig myndast kanilstangirnar.

 

Kúmarín í Cassía

Bragðefnið kúmarín er að finna í kanil frá náttúrunnar hendi en ef þess er neytt í miklum mæli getur það valdið lifrarskaða. Ceylon-kanill inniheldur mun minna magn kúmaríns en cassía-kanill. Matvælaöryggisstofnun Evrópu telur að þolanleg dagleg inntaka sé 0,1 mg/kg líkamsþyngdar á dag. Könnun Råd og Rön sýndi að kúrmerín magnið í cassía-kanil var almennt mun hærra en í ceylon-kanil. Magnið er þó almennt ekki svo mikið að fullorðið fólk þurfi að hafa áhyggjur nema það borði cassía- kanil að staðaldri. Manneskja sem vegur 70 kíló gæti borðað um það bil eina teskeið á dag af þeirri kaniltegund sem innihélt mest kúrmerin. Börn eru hins vegar viðkvæmari og þola minna magn af skaðlegum efnum. Kanilneysla barna ætti því að vera hófleg og velja ætti ceylon-kanil umfram cassía-kanil fyrir börn.

Blý í börnum

Vorið 2023 fengu meira en 500 ung börn í Bandaríkjunum blýeitrun sem rakin var til neyslu á kanil. Nánar tiltekið var um að ræða epla-kanilmauk frá þremur ólíkum framleiðendum sem selt var í svokölluðum „skvísum“. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) innkallaði vörur frá þremur framleiðendum.

Blý finnst í jarðvegi, bæði frá náttúrunnar hendi og vegna mengunar frá iðnaði. Rannsókn FDA benti til þess að blýkrómati hefði verið blandað vísvitandi við kanilinn. Blýkrómat var hér á árum áður notað sem litarefni í málningu en það er sterkgult að lit. Í dag er notkun efnisins einungis leyfð í mjög takmörkuðum tilgangi og alls ekki í matvælum. Rannsóknin barst til Ekvador og var fyrirtækinu sem hafði eitrað kanilinn samstundis lokað af þarlendum yfirvöldum.

Aðeins tvö ríki í Bandaríkjunum hafa sett viðmið hvað varðar magn þungmálma í kryddi. Í New York ríki má blýmagn í kanil, og öðrum kryddum, ekki fara yfir 1 mg fyrir hvert kíló. Frá árinu 2016 hafa meira en 100 kanil- og kryddtegundir verið innkallaðar í Bandaríkjunum. Nýlega voru svo sett lög í Kaliforníu sem skylda matvælaframleiðendur til að rannsaka barnamat með tilliti til innihalds á blýi, kvikasilfri, kadmíum og arseni. Er framleiðendum enn fremur skylt að deila niðurstöðunum með almenningi. Frumvarp um hámark þungmálma í kryddum sem myndi ná til allra ríkja Bandaríkjanna situr hins vegar fast í nefnd.

Eftir að blýeitrunarmálið komst í hámæli gerði Consumer Reports rannsókn á 36 kaniltegundum og kryddblöndum sem innihalda kanil. Tólf tegundir innihéldu meira blý en 1 mg/kg, sem er áðurnefnt viðmið í New York ríki. Consumer Reports fóru því næst í undirskriftarherferð og kröfðust þess að sett yrðu lög á landsvísu um hámark á leyfilegu magni blýs og annarra þungmálma í kryddum.

Þess má geta að í fyrrnefndri gæðakönnun Råd och Rön fundust örlitlar leifar af blýi í aðeins einni kaniltegund af fjórtán. Lítið barn þyfti að borða tvær teskeiðar á dag af slíkum kanil til að ná viðmiðunarmörkum.

Blý í kanil ekki vandamál hér á landi

Samkvæmt evrópskum reglum er hámarksgildi fyrir blý í kanil 2,0 mg/kg. Matvælastofnun fylgist með tilkynningum um hættulegar matvörur í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu (RASFF). Kerfið gerir ríkjum í Evrópu kleift að deila upplýsingum og bregðast hratt við ef taka þarf matvöru úr sölu. Á undanförnum árum hafa aðeins örfáar tilkynningar borist sem varða blý í kanil og ekkert bendir til þess að umræddar tegundir hafi verið seldar hér á landi.

Neytendablaðið vor 2025

 

 

 

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Viðskiptahættir Booking.com hafa verið undir smásjánni.
Þrátt fyrir að stjörnugjöf geti verið gagnlegur leiðarvísir við val á gistingu er rétt að taka henni með fyrirvara

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.