Fréttir

Aðalfundur 2026

iStock.com/Sensvector

Aðalfundur Neytendasamtakanna verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl að Guðrúnartúni 1. Fundurinn hefst kl.17:30. Allir skuldlausir félagsmenn eiga rétt til setu á fundinum.

Félagsmenn eru hvattir til að skrá mætingu með tölvupósti á ns@ns.is eða í síma 545 1200.

Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. 6. grein samþykkta. Ekki liggja fyrir lagabreytingar og sjálfkjörið er í stjórn.

Dagskrá aðalfundar:
17:30   Kjör fundarstjóra og ritara fundarins.
17:40   Skýrsla stjórnar um starfsemi samtakanna og rekstur þeirra á liðnu starfsári.
18:00   Endurskoðaður ársreikningur 2025 lagður fram.
18:20   Rekstraráætlun til næstu áramóta lögð fram.
18:40   Kynning og umræða um stefnu samtakanna og ályktanir sem liggja fyrir fundinum.
19:00   Kjöri stjórnar lýst.
19:15   Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga og þriggja manna kjörnefndar til eins árs.
19:20   Önnur mál.
19:30   Fundi slitið.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.