Fréttir

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

iStock.com/ljubaphoto

Er góð hugmynd að kaupa sólarvörn á Temu, Sheim og AliExpress? Svarið er afgerandi NEI að mati dönsku neytendasamtakanna.

„Við höfum gert gæðakannanir á sólarvörn til fjölda ára en aldrei áður séð tegundir sem veita hreinlega enga vörn gegn sólinni,“ segir Stine Müller hjá Forbrugerrådet Tænk.  Rannsóknin tók til tíu tegunda sem allar voru keyptar af fyrrgreindum netverslunum og áttu að tryggja SPF 50 vörn. Niðurstaðan var sláandi: Fjórar tegundir veittu enga vörn, tvær veittu mun minni vörn en lofað var á umbúðum og aðeins ein tegund stóðst prófið. Ekki var hægt að rannsaka þrjár tegundir með tilliti til sólarvarnar þar sem þær innihalda efni sem er bannað innan Evrópusambandsins.

Temu og Shein hafa tekið nokkrar tegundir úr sölu og öll segjast fyrirtækin nú ætla að rannsaka málið nánar.

Dönsku samtökin mæla gegn kaupum á sólaráburði af þessum stóru netsölurisum og taka Neytendasamtökin undir það.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Svik á samfélagsmiðlum

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.