Evrópuráðið og Evrópuþingið hafa verið að endurskoða réttindi flugfarþega og hafa neytendasamtök um alla Evrópu (þar á meðal Neytendasamtökin á Íslandi) lagt sitt af mörkum til að viðhalda réttindunum og efla þau. Svo virðist sem baráttan hafi skilað árangri. Hafa Evrópuráðið og Evrópuþingið hefur loks náð saman um tímamótatillögur sem innihalda margt af því helsta sem samtökin kröfðust. Meðal annars:
-Skilmálar um mætingaskyldu (e. „No-show“) verða bannaðir, en það hefur lengi verið eitt af baráttumálum Neytendasamtakanna .
-Engin sætisgjöld fyrir börn yngri en 14 ára sem sitja við hlið fylgdarmanns.
-Miðaverð verður að innifela handfarangur.
-Bótafjárhæðir verða áfram þær sömu, sem og 3 klst tafamörk. Það þýðir að verði meira en þriggja klukkustunda seinkun á flugi á farþegi rétt á bótum.
-Úr kaflanum um óvenjulegar aðstæður eru felld veikindi áhafnar og öryggisbúnaður, sem er af hinu góða.
-Skýrar leiðbeiningar fyrir farþega um hvernig eigi að sækja um bætur frá flugfélögum. Ekki náðist þó í gegn að flugfélög væru skyldug til að senda farþegum forútfyllt eyðublöð. Þess í stað verða flugfélög að senda farþegum hlekk á eyðublað og greiða þeim bætur innan 30 daga, eða gefa skýringar á því hvers vegna bótakröfu er hafnað.
Aðildarríkin eiga enn eftir að samþykkja þessar tillögur en gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðsla um þær fari fram í næstu viku. Svo er bara að sjá hversu langan tíma tekur að innleiða þessar umbætur á Íslandi.