Fréttir

Nýtt Neytendablað haustið 2026

-Hrakvæðing, fasteignakaup, dýrt innanlandsflug og margt fleira

Nýtt Neytendablað ætti að hafa borist félagsmönnum, fullt af fjölbreyttum fréttum um neytendamál.

Vísvitandi verri – Birtingarmynd þess þegar gæðin minnka og þjónustan versnar eru ótal margar. Í blaðinu er sagt frá skítvæðingu stafrænnar þjónustu, hvernig HM í knattspyrnu varð fórnarlamb hrakvæðingar og hvers vegna hlaupaskór endast svo illa.

Fasteignakaup – Í Noregi og Svíþjóð tíðkast opið tilboðsferli í fasteignakaupum ólíkt því sem gerist á landi. Slíkt eykur gagnsæi í fasteignaviðskiptum til muna. Þá geta Fasteignakaupendur í nágrannalöndunum gjarnan samið um vaxtakjör þar sem raunveruleg samkeppni ríkir á lánamarkaði.

Dýrt innanlandsflug – Íbúar sem reiða sig á innanlandsflug hafa lengi kvartað yfir háu verði á flugmiðum. Frá 2020 hafa stjórnvöld veitt styrki í gegnum verkefnið Loftbrú en nú lítur út fyrir að dregið verði úr stuðningi. Neytendablaðið fjalla um málið í samstarfi við Austurgluggann.

Réttur til heilbrigðisþjónustu erlendis – Sjúkratryggðir eiga rétt á að leita eftir mikilvægri heilbrigðisþjónustu utan landsteinana. Það er þó ákveðnum skilyrðum háð.

Markaðssetning lyfjafyrirtækja – Það er bannað að auglýsa lyfseðilskyld lyf og því bregða lyfjafyrirtækin á það ráð að auglýsa sjúkdóma í staðinn. Lyfjastofnun Frakklands sektaði tvo lyfjarisa fyrir að hafa gengið of langt í þeim efnum.

Svik á samfélagsmiðlum – Ný rannsókn neytendasamtaka í Evrópu sýnir að allt of mikið af svikaauglýsingum leynast á miðlum Meta, TikTok og Google. Miðlarnir gera ekki nóg til að stöðva svikin og fyrir það gjalda neytendur.

Endurgreiðsluferli – Neytendasamtökin fá gjarnan kvartanir um að vörur keyptar í netverslunum skili sér ekki. Oft er um að ræða svokallaðar sýndarverslanir. Þegar svo ber undir er oft hægt að fara endurkröfuferli hjá útgefanda kortsins.

Neytendablaðið er sent öllum félögum Neytendasamtakanna. Hægt er að gerast félagi hér.

Þá er hægt að gerast hollvinur samtakanna hér.

Fréttir í sama dúr

Réttur flugfarþega vegna yfirvofandi verkfalls

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.