Fréttir

Áskorun um vernd í netviðskiptum

iStock.com/Sensvector

Neytendasamtökin eru á meðal 88 félagasamtaka sem í dag, 7. júlí 2026, sendu  framkvæmdastjórn Evrópusambandsins áskorun um að efla neytendavernd í netviðskiptum.

Í hnotskurn snýst áskorunin um að efla eftirfylgni með þeim lögum og reglum sem gilda á innri markaðinum. Hraður vöxtur netviðskipta hefur leitt til fordæmalauss vaxtar innflutnings frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. Talið er að 5,9 milljarðar pakkar hafi verið sendir inn á svæðið árið 2025.. Víðtækt eftirlit og rannsóknir hafa meðal annars leitt í ljós að stór hluti innfluttra vara hefur ekki staðist öryggis- eða umhverfiskröfur, brotið er á hugverkaréttindum og framleiðendaábyrgð hefur ekki verið sinnt.

Félagasamtökin leggja til að væntanleg vörutilskipun (e. European Product Act) innihaldi eftirfarandi:

-Ábyrgðaraðili verði tilgreindur á evrópska efnahagssvæðinu óháð söluleið eða upprunalandi. Sá beri lagalega ábyrgð á að söluvaran uppfylli allar kröfur.

-Netverslanir eða markaðstorg á netinu (e. online platforms) skulu áður en vara er sett í sölu, tryggja að hún standist kröfur.

– Netverslanir eða markaðstorg á netinu skulu vera viðurkenndir ábyrgðaraðilar þegar enginn annar ábyrgðaraðili er til staðar.

Með þessu yrði stoppað í stórt lagalegt gat, markaðseftirlit styrkt til muna og rekstrarskilyrði fyrirtækja jöfnuð.

Neytendasamtökin skora jafnframt á íslensk stjórnvöld að innleiða þessar umbætur á Íslandi hratt og örugglega.

Hér má sjá áskorunina í heild sinni á ensku.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Svik á samfélagsmiðlum

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.