Fréttir

Dýrt að fljúga innanlands

iStock.com/Marc Serota Collection

Úttekt Neytendablaðsins og Austurgluggans

Í fámenninu hér á landi er ekki forsenda fyrir öflugu lestarkerfi eins og í nágrannalöndum okkar. Íbúar á landsbyggðinni, sér í lagi fjærst höfuðborginni, reiða sig því mjög á innanlandsflugið. Í raun má segja að flugið sé okkar lestarkerfi enda er það oft eina leiðin til að komast hratt og örugglega til höfuðborgarinnar.

Hátt verð á flugi á innanlands hefur löngum verið þyrnir í augum íbúa sem búa fjarri höfuðborginni en þurfa, og vilja, heimsækja höfuðborgina í margvíslegum tilgangi. Hinn kosturinn er að keyra en ferðalagið frá Egilsstöðum til Reykjavíkur tekur 8–9 klukkutíma miðað við bestu aðstæður og er því oft ekki raunhæfur kostur. Akstur frá Ísafirði til höfuðborgarinnar tekur hátt í 6 tíma og frá Akureyri hátt í 5 tíma. En það er ekki bara ferðatíminn sem er farartálmi. Mörgum hrýs hugur við að keyra langar vegalengdir enda eru veður oft válynd, vegakerfið víða slæmt og glæfralegur frammúrakstur daglegt brauð.

Loftbrú er greiðsluþátttaka ríkisins í flugfargjöldum um 60.000 íbúa sem eiga lögheimili á landsbyggðinni. Niðurgreiðslan nemur 40% af miðaverði á sex flugleggjum innanlands á ári. Frá september 2020 hafa verið flognir rúmlega 420.000 flugleggir niðurgreiddir með Loftbrú. Ferðirnar voru flestar í fyrra og allt bendir til þess að notkunin aukist enn á þessu ári. Vegagerðin er umsjónaraðili verkefnisins en hefur ekki eftirlit með verðlagningunni.

Í ljósi þess hve innanlandsflug er mikilvægur samgöngumáti hefur mörgum þótt nóg um dýrtíðina. Þegar vinirnir Unnar Erlingsson og Ívar Ingimarsson stofnuðu Facebook-hópinn „Dýrt innanlandsflug – þín upplifun“ árið 2016 stóð líka ekki á viðbrögðum. Umræðuefnið var greinilega þarft því fljótt taldi hópurinn þúsundir. Umfjöllunin einskorðaðist ekki við Austurland, hvar þeir Unnar og Ívar búa, enda er áætlunarflug til ellefu staða vítt og breitt innanlands.

Flug víða niðurgreitt

Krafan um aðgerðir varð sífellt háværari. Jóna Árný Þórðardóttir, þáframkvæmdastjóri Austurbrúar, birti grein í Austurfrétt árið 2016 sem vakti verðskuldaða athygli. Hún benti á að það væri víðar en hér á landi sem stjórnvöld stæðu frammi fyrir þeirri áskorun að jafna aðstöðumun íbúa landsbyggðar og þéttbýlis. Í Skotlandi höfðu stjórnvöld farið þá leið að niðurgreiða flug fyrir íbúa í dreifðum byggðum svo þeir gætu sótt þjónustu til þéttbýlla svæða. Reyndar eru mörg ríki Evrópu með niðurgreiðslukerfi sem miðar að því að tryggja íbúum í dreifbýli aðgengi að miðlægri þjónustu. Þar er einkum um að ræða lönd sem ráða yfir eyjum. Í Portúgal er t.d. þak á verði flugmiða fyrir íbúa Azoreyja og Madeira og á Ítalíu er flug fyrir íbúa á Sardiníu og Sikiley niðurgreitt til Mílanó og Rómar. Það fyrirkomulag gekk í gildi á þessu ári. Afslátturinn gildir aðeins með AeroItalia og kostar farmiði fram og til baka 120 evrur, eða 17.000 kr. Ekki er takmörkun á fjölda ferða. Í Noregi eru svo ákveðnar leiðir boðnar út og jafnframt sett hámark á miðaverð.

En aftur hingað heim. Til að gera langa sögu stutta var settur á fót stýrihópur sem lagði til niðurgreiðslukerfi að skoskri fyrirmynd. Það má segja Alþingi til hróss að hugmyndinni var strax vel tekið og samstaða myndaðist um hana þvert á flokka. Með samþykkt samgönguáætlunar í febrúar 2019 var ákveðið að vinna að íslenskri útfærslu hennar sem fékk heitið Loftbrú.

Jóna Árný Þórðardóttir

Góð nýting ánægjuefni

Jóna Árný, sem í dag er bæjarstjóri Fjarðabyggðar, fékk þann heiður að panta fyrsta miðann á Loftbrúarverði. Í samtali við Neytendablaðið segir Jóna Loftbrúna hafa aukið aðgengi íbúa fjærst höfuðborginni að þeim gæðum sem borgin hefur upp á að bjóða. „Mér finnst sérstaklega ánægjulegt hvað Loftbrú er mikið notuð, sem sýnir hve þörfin var mikil. Verkefnið hefur því staðið undir væntingum og ekki er síst jákvætt hversu vel ungt fólk nýtir Loftbrúna. Ef við viljum að það sjái sér framtíð á Austurlandi þurfum við að tryggja því aðgengi að fjölbreyttum tækifærum án þess að búsetan verði hindrun. Loftbrúin er klárlega verkfæri til þess.” Jóna Árný segir þó mikilvægt að Loftbrúin verði ekki til þess að draga athyglina frá þróun flugfargjalda. „Það þarf jafnframt að vera aðhald gagnvart hækkun flugverðs og tryggja að það dragi ekki úr þeim ávinningi sem Loftbrúnni er ætlað að skila. Markmiðið er jú að innanlandsflug sé raunhæfur og viðráðanlegur samgöngukostur fyrir fólk sem býr fjarri höfuðborginni.“

Skotar styrkja úrræðið

Skotar, sem hófu niðurgreiðslu flugs árið 2006, eru ekki með takmarkanir á fjölda niðurgreiddra flugleggja og hafa hækkað niðurgreiðsluna úr 40% í 50%. Jóna Árný segist sjá tækifæri í því að fjölga flugleggjum og jafnvel að auka greiðsluþátttökuna. „Vissulega gæti það falið í sér aukinn kostnað fyrir ríkið en myndi að sama skapi leiða til betri búsetuskilyrða á landsbyggðinni. Loftbrúin styrkir samkeppnishæfni sveitarfélaga á landsbyggðinni, eykur lífsgæði og skapar betri skilyrði fyrir ýmiss konar þróun þar sem ferðatími skiptir verulegu máli. Það er ávinningur sem nær langt út fyrir þann einstakling sem nýtir úrræðið – hann skilar sér til samfélagsins alls.“

Ferðakostnaður bitnar á íþróttaiðkun

Oft hefur verið bent á að hár ferðakostnaður geri íþróttafélögum á landsbyggðinni erfitt fyrir og geti jafnvel komið niður á íþróttaiðkun barna. Guðný Stefanía Stefánsdóttir, sem situr í stjórn Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), segir kostnað vegna ferðalaga í tengslum við íþróttaiðkun barna vera að sliga mörg heimili og jafnvel hafa orðið til þess að einhver börn hafi þurft að hætta íþróttaiðkun. Hún þekkir málið af eigin raun en hún býr á Ísafirði og er móðir þriggja drengja sem allir hafa verið á kafi í íþróttum.

Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Guðný Stefanía rifjar upp að á sínum tíma hafi verið sérstök fargjöld í boði fyrir íþróttafólk, sem voru töluvert lægri en almennt fargjald, en meira en áratugur er síðan þau voru tekin út. Guðný Stefanía er gagnrýnin á Loftbrúna. „Kostirnir eru auðvitað að það er stundum hægt að fá flugið á viðráðanlegra verði. Það eru þó bara sex flugleggir á ári, sem er ekki mikið ef á að nýta þetta sem samgöngubót. Það eru líka of fá sæti laus á viðráðanlegu verði og skiptir nánast engu hvenær er skoðað, með margra vikna fyrirvara eða nokkurra daga.“

Verði nær því að vera almenningssamgöngur

Unnar Erlingsson segir að færa þurfi innanlandsflugið nær því að vera eins og aðrar almenningssamgöngur. „Það þarf að bæta tíðnina og gera verðið gegnsærra, eins og til dæmis gildir um strætisvagna eða ferjur. Herjólfur er gott dæmi um þetta, en þar gengur fólk að föstu verði í allar ferðir. Ekki þarf að bóka ferð með löngum fyrirvara nema til að tryggja sér far, sem á álagstímum getur auðvitað verið æskilegt.“ Unnar segist einnig vilja stækka þann hóp sem nýtur niðurgreiðslu og fjölga leyfilegum flugleggjum eða afnema takmarkanir alveg. „Það myndi bæta aðstöðu fólks og sérstaklega barna sem þurfa suður vegna íþróttaiðkunar en líka barna sem eiga foreldra sem eru hvor á sínu landshorninu og ferðast reglulega á milli landshluta. Það sama á við um fólk sem sækir námslotur eða heilbrigðistengda þjónustu sem ekki er greidd af ríkinu, svo sem tannlækningar og sálfræðiaðstoð.“

Unnar Erlingsson

Unnar segir að ef ekki reynist unnt að fjölga niðurgreiddum flugferðum væri eðlilegt að rýmka heimildir til að deila flugleggjum, svo sem milli fjölskyldumeðlima. „Til dæmis gæti barn nýtt ferðir foreldra sinna eða jafnvel að amma og afi á Akureyri gætu leyft barnabarni sínu að njóta lægra flugfargjalds til að koma í heimsókn. Þannig myndum við styrkja félagsleg tengsl milli landshluta, en fjarlægð og ferðakostnaður er ein stærsta ástæða þess að fólk flytur síður út á land frá sínum nánustu. Að missa félagslega netið sitt er erfitt og jafnframt stórt og mikilvægt samfélagsmál,” segir Unnar.

Unnar segir kostnað ríkisins alltaf verða umdeildan. „Rökin „þú valdir að búa þarna“ eru lífsseig og snúin. Þau tengjast stefnu stjórnvalda og vilja landsmanna til að halda öllu landinu í byggð og tryggja sambærileg lífsgæði allra landsmanna óháð búsetu.“ Þetta er og hefur aldrei verið skýrt eða áberandi áherslumál stjórnvalda að mati Unnars.

Dregið úr stuðningi

Ekki er útlit fyrir að bætt verði í Loftbrú eins og vonir stóðu til. Undanfarin ár hafa verið settar 600 milljónir kr. í verkefnið en eftirspurnin hefur verið það mikil að aukafjárveitingu hefur þurft til. Í fyrra námu heildarútgjöld vegna Loftbrúar rúmlega 740 millljónum kr. Í skriflegu svari innviðaráðuneytisins kemur fram að fyrirkomulaginu verði breytt þannig að afsláttur verði föst krónutala í stað hlutfalls af verði flugmiða eins og nú er. Framlag ríkisins á næsta ári verður 600 milljónir kr. líkt og verið hefur og hækkar því ekki í takt við almennar verðlagsbreytingar. Þá muni ekki koma til nein aukafjárveiting sem þýðir að Loftbrúarstuðningur minnkar verulega.

Fljótlega eftir að greinin birtist í Neytendablaðinu og Austurglugganum gaf ráðherra út að styrkurinn yrði föst krónutala 7.000 kr á legg. Var fyrirhugðum breytingum mótmælt harðlega og er nú talað um 9.000 kr. niðurgreiðslu á hvern legg. Hvað verður liggur ekki enn fyrir.

Tveir leggir á markaðsforsendum

Einungis tvö flugfélög, Icelandair og Norlandair, sinna almennu innanlandsflugi í dag. Flug milli Reykjavíkur og Akureyrar annars vegar og Reykjavíkur og Egilsstaða hins vegar eru einu leiðirnar sem reknar eru á markaðslegum forsendum og njóta því ekki sérstaks ríkisstyrks að Loftbrú undanskilinni. Aðrar flugleiðir til Hornafjarðar, Bíldudals, Gjögurs, Vopnafjarðar, Þórshafnar, Grímseyjar og Vestmannaeyja eru ekki taldar bera sig á markaðslegum forsendum. Þær njóta því sérstaks ríkisstuðnings og eru boðnar út. Ísafjörður hefur nú bæst í hóp áfangastaða sem ekki eru taldir bera sig á markaðsforsendum og hefur Vegagerðin samið við Icelandair um Ísafjarðarflug til næstu fjögurra ára.

Hátt verð – hvað veldur?

Þrátt fyrir tilkomu Loftbrúar lifir Facebook-hópurinn fyrrnefndi góðu lífi enda ekki svo að verð á innanlandsflugi hafi snarlækkað með tilkomu Loftbrúar; þvert á móti er það tilfinning margra að flug hafi hækkað meira en eðlilegt er. Ekki er þó alveg einfalt að skera úr um það þar sem nokkuð ber á milli gagna Hagstofu Íslands um verðþróun flugmiða og þeirra upplýsinga sem fengust frá Vegagerðinni. Mælingar Hagstofunnar eru hluti af mánaðarlegum verðbólgumælingum en svar Vegagerðarinnar byggist á veittum afslætti vegna Loftbrúar. Þær tölur ættu því að vera nákvæmari því þær byggjast á flugmiðum sem hafa verið keyptir. 

Samkvæmt Vegagerðinni hefur innanlandsflug hækkað meira en vísitala neysluverðs frá árinu 2020 eða sem nemur 11%. Mælingar Hagstofunnar sýna hins vegar að verð á innanlandsflugi hafi hækkað minna en millilandaflug og vísitala neysluverðs. Nokkrar sveiflur eru á verði flugfargjalda milli mánaða en í töflunni er notað hlaupandi meðaltal til að mýkja þær sveiflur.

Niðurgreiðsla eftir árum

Gögn frá Vegagerðinni sýna hversu margar flugferðir hafa verið niðurgreiddar frá 2020 sem og hver árleg fjárframlög ríkisins hafa verið. Þá sést hver niðurgreiðslan hefur verið á hvern legg að meðaltali. Samkvæmt þessum tölum hefur hver flugleggur kostað að meðaltali rúmlega 23.000 kr. árið 2025.

Hvað sem öllum vísitölum líður er ekki deilt um að verð á innanlandsflugi er hátt. Það er ekki síst þegar bóka þarf flug með mjög skömmum fyrirvara að fólki svelgist á. Þess eru jafnvel dæmi að miðinn fari upp fyrir 60.000 kr. aðra leið. Þá reiða mörg fyrirtæki og stofnanir á landsbyggðinni sig á innanlandsflug og hátt verð íþyngir rekstrinum. Sem dæmi hefur kostnaður Sjúkrahússins á Akureyri vegna innanlandsflugs verið rúmlega 30 milljónir króna á ári undanfarin ár.  

Ódýrara að fljúga úr landi?

Á Norðurlandi hefur verið gantast með að það geti í sumum tilvikum verið ódýrara að fljúga til Reykjavíkur í gegnum London en með innanlandsflugi. Er þá vísað til beins vetrarflugs með easyJet frá Akureyri til London og þaðan til Keflavíkur. Ferðalagið tæki vissulega heillangan tíma og við bættist það verkefni að koma sér frá Leifsstöð með hagstæðum og skjótum hætti, sem er efni í aðra grein. En það má taka raunhæft dæmi um íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem vill skjótast í stutta aðventuferð. Valið stendur á milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar. Farið að heiman föstudaginn 27. nóvember og komið til baka mánudaginn 30. nóvember. Að sjálfsögðu með innritaðri tösku undir jólagjafirnar sem eru keyptar í ferðinni. Flugmiðinn til Egilsstaða kostar 35.275 kr. á mann án Loftbrúar. Ódýrasta farið til Kaupmannahafnar með Icelandair þessa daga er rúmlega á 46.000 kr. Ekki það mikill munur. Leitum betur, hvað með London? EasyJet býður flugfarið fram og til baka á 30.000 krónur!

Lítill markaður skýri hátt verð

Það er því von að spurt sé hvers vegna flugfargjöld séu álíka dýr eða jafnvel ódýrari milli landa en innanlands. Í skriflegum svörum bendir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair á að innanlandsflug á Íslandi sé rekstrarlega mjög lítill markaður þar sem leiðir eru stuttar og flogið með tiltölulega fáa farþega. Þar með séu takmarkaðri möguleikar til stærðarhagkvæmni. „Stór hluti kostnaðar við flug er sá sami hvort sem flogið er í 40 mínútur eða nokkrar klukkustundir. Áhöfn, viðhald, öryggiskröfur, flugvallagjöld og önnur föst aðföng eru nauðsynleg óháð vegalengd. Nýting á þessum innviðum er mjög lítil í samanburði við alþjóðaflugið.“

Guðni segir dæmi um þetta megi sjá í júlí síðastliðnum. Þá flaug hver vél í alþjóðaflota félagsins tæplega 15 klukkustundir á dag. Á sama tímabili var innanlandsflotinn nýttur í um fimm klukkustundir á dag. „Þegar kostnaðinum er dreift á mun færri sæti verður kostnaður á hvern farþega hærri. Það er því erfitt að bera saman verð á innanlandsflugi innan Íslands annars vegar og á stórum millilandamörkuðum hins vegar. Þetta höfum við áður bent á í umræðu um verðlagningu innanlandsflugs og er auðvelt að sannreyna með samanburði við svipaða innanlandsmarkaði, til að mynda í Noregi.“

Guðni telur að Loftbrú hafi haft jákvæð áhrif á eftirspurn eftir innanlandsflugi. „Hún hefur aukið aðgengi fólks á landsbyggðinni að flugsamgöngum en mikilvægt er þó að hafa í huga að fjöldi þátta hefur áhrif á farþegafjölda, svo sem efnahagsástand, verðlag, veður og almennar ferðavenjur landsmanna. Því er erfitt að einangra áhrif Loftbrúar.“ Spurður hvort Icelandair sjái tækifæri til að ná niður kostnaði neytenda í innanlandsflugi segir Guðni mikilvægt að skapa forsendur fyrir aukinni nýtingu flugvéla, meiri eftirspurn og betri tengingum innanlandsflugs við alþjóðlegt leiðakerfi félagsins. „Stærðarhagkvæmni næst ef fleiri nýta innanlandsflugið og því hefur Icelandair lagt mikið upp úr því að gera það aðgengilegt fyrir erlenda ferðamenn í gegnum alþjóðleg bókunarkerfi sín og sölunet. Þá höfum við einnig lagt áherslu á að þróa vöruframboð og verðskipulag þannig að farþegar sem bóka með fyrirvara geti fengið hagstæðari kjör. Á öllum mörkuðum gildir sú regla að verð er almennt lægra þegar bókað er með góðum fyrirvara,“ segir Guðni að lokum.

Hér má benda á að ólíkt því þegar ferðast er til útlanda, þarf fólk oft að nýta innanlandsflugið með stuttum fyrirvara. Þegar svo háttar til er verð á farmiða yfirleitt himinhátt. Þannig er innanlandsflugið ekki það ígildi almenningsamgangna sem íbúar óska sér.

Neytendablaðið haust 2026

Fréttir í sama dúr

Nýtt Neytendablað

Forsíða NBL haust 2026

Réttur flugfarþega vegna yfirvofandi verkfalls

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.