Fréttir

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

iStock.com/Fahroni

Bílastæðabraskið hefur verið ansi fyrirferðarmikið í umræðunni og ekkert lát er á kvörtunum til Neytendasamtakanna. Nær eingöngu er kvartað undan vangreiðslugjöldum.

Neytendasamtökin hvetja rekstraraðila bílastæða til að sleppa því alfarið að rukka vangreiðslugjöld. Það er reynsla samtakanna að neytendur hafi almennt ekkert á móti því að greiða sanngjarnt verð fyrir bílastæði. Upplýsingaóreiða, villandi og jafnvel rangar upplýsingar, hafa hins vegar leitt til þess að fjöldi fólks hefur verið rukkaður um vangreiðslugjöld að ósekju.

Vaðlaheiðargöng fella niður vangreiðslugjald

Vaðlaheiðargöng hafa nú verið opin í tæpan áratug. Ólíkt því sem tíðkaðist í Hvalfjarðargöngum er ekki innheimt gjald við gangnamunnann. Fyrirkomulagið var þannig að ökumenn skráðu sjálfir ferðina á vefnum og þurfti greiðsla að hafa borist innan tiltekins tíma. Þessi nýstárlega aðferð olli ýmsum vandkvæðum og sitt sýndist hverjum. Funduðu fulltrúar Neytendasamtakanna með forsvarsmönnum Vaðlaheiðarganga á sínum tíma vegna málsins.

Fyrr á þessu ári uppfærðu Vaðlaheiðargöng verðskrá sína og var greiðslufyrirkomulagið einfaldað. Ökuþór getur nú ekið í gegnum göngin og fengið kröfuna beint í heimabanka án nokkurra aukagjalda.  

Neytendasamtökin vilja hrósa Vaðlaheiðargöngum fyrir framtakið og hvetja rekstraraðila bílastæða eindregið til að fylgja þessu fordæmi.

Ákvarðanir Neytendastofu

Eins og fyrr segir er það alls ekki upplifun Neytendasamtakanna að neytendur séu að reyna að koma sér undan því að greiða bílastæðagjöld. Þvert á móti liggur fyrir að rekstraraðilar bílastæða hafa oft á tíðum staðið sig afar illa í upplýsingagjöf og hafa neytendur borið hallann af því.

Neytendastofa tók enn og aftur ákvarðanir í bílastæðamálum fyrr á þessu ári. Þrjár þeirra vörðuðu upplýsingagjöf og viðskiptahætti í tengslum við bílastæði utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrst tók Neytendastofa til skoðunar upplýsingagjöf á bílastæðum Isavia við innanlandsflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum, en sömu athugasemdir voru gerðar á báðum flugvöllum við upphaflega athugun. Að endingu var Isavia sektað um 200.000 kr. fyrir að hafa gefið til kynna með merkingum á bílastæðum að gjaldtaka væri sjálfvirk fyrstu 14 klst. viðveru, þegar virkja þurfti sérstaklega þann eiginleika við greiðslu. Hefði þannig einstaklingur getað lagt á bílastæðinu, í góðri trú um að gjaldtakan yrði sjálfvirk og sambærileg t.d. því sem er í Vaðlaheiðargöngum, en engu að síður fengið vangreiðslugjald vegna þess að hann virkjaði ekki sjálfvirknina.

Næst skoðaði Neytendastofa bílastæði á vegum Kvasa lausna (Checkit). Fyrirtækið hefur séð um gjaldtöku á bílastæðum í bílakjallaranum við Kirkjusand, bílakjallaranum Höfðatorgi, við Hengifoss, Selafjöru, Seljalandsfoss, Seltún og á fjórum stöðum á Þingvöllum. Var fyrirtækið sektað um 300.000 kr. fyrir nokkrar sakir. Rangar upplýsingar var að finna um greiðslulausnir til að greiða fyrir viðveru við Höfðatorg og Kirkjusand. Gjaldskyldumerkingum við Hengifoss var einnig ábótavant, verðskrá var ekki nægilega áberandi við Seltún og enga slíka var að finna við Kirkjusand, Hengifoss og á þremur af fjórum stæðum þeirra við Þingvelli.

Þá voru Sannir Landvættir sektaðir um 250.000 kr. vegna ófullnægjandi upplýsingagjafar um vangreiðslugjald á bílastæðum við Kirkjufellsfoss og við Hveri við Námaskarð. 

Fréttir í sama dúr

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Svik á samfélagsmiðlum

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.