Fréttir

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

iStock.com/dongfang zhao

– Sameiginlegt ákall 34 neytendasamtaka til stjórnvalda í Evrópu

Neytendasamtökin eru meðal 34 neytendasamtaka sem sendu eftirfarandi ákall til stjórnvalda í Evrópu þar sem þau eru krafin um að verja og efla réttindi flugfarþega:

Brussel, 26. maí 2026,

Evrópskum neytendum eru tryggð skýr og skilvirk réttindi farþega; og þeim er framfylgt. Hvert skref til baka myndi svipta milljónir  Evrópubúa mikilvægri neytendavernd og grafa undan trausti þeirra á getu Evrópusambandsins til að tryggja raunveruleg réttindi. Á tímum þegar farþegar standa frammi fyrir tíðum töfum á flugi, aflýsingum og flóknum, og oft óskilvirkum kvörtunarferlum, eru núverandi fyrirætlanir um endurskoðun reglugerða um réttindi flugfarþega að færast í varhugaverða átt.

Hver sú niðurstaða sem veikir áunnin réttindi er óásættanleg. Það væri betri kostur að standa vörð um gildandi reglur ef ekki á að ráðast í raunverulegar úrbætur. Núverandi reglur hafa sannanlega bætt ferðaupplifun fólks.

Réttindi farþega má ekki skerða vegna aðstæðna í heimsmálum. Þau eru skylda sem tryggð er í Evrópusáttmálanum. 12. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gerir þá kröfu að Evrópusambandið samþætti neytendavernd í allar stefnur Sambandsins. 169. gr. sáttmálans kveður á um ríka neytendavernd og að grundvallarréttindi og hagsmunir neytenda séu efld. Samkvæmt 10. grein sáttmálans ber sambandinu að berjast gegn mismunun vegna fötlunar og aldurs þegar það skilgreinir og framkvæmir stefnu sína og starfsemi.

Neytendasamtök og borgaraleg samtök eru staðráðin í að bæta núverandi vernd. Í ljósi þessa skorum við, undirrituð, á stofnanir ESB að tryggja að endurskoðuð reglugerð innihaldi eftirfarandi lykilatriði:

1. Ekki verði hróflað við núverandi þriggja tíma bótaþröskuldi

Tillögur um að hækka bótaþröskulda í fjórar og sex klukkustundir myndu svipta yfir 60% þeirra farþega, sem nú eiga rétt á bótum þeim rétti. . Evrópusambandið verður jafnframt að viðhalda núverandi bótafjárhæðum til að tryggja að þær séu áfram árangursríkar, í samræmi við meðalhóf og fælandi.

Verði tillögurnar samþykktar myndu bætur lækka um 67%, úr 250 evrum í 83 evrur. Jafnframt yrði tímabil sem flugfélög þurfa að greiða bætur fyrir aflýsingar stytt ýr 14 dögum í 48 klukkustundir. Það myndi auka kostnað, óvissu neytenda og ójafnvægi milli milli neytenda og flugfélaga.

Núverandi löggjöf virkar og skapar sterka hvata til rekstraröryggis fyrir flugfélög. Þær draga úr töfum sem eru lengri en þrjár klukkustundir um allt að 70%. Jafnframt hefur löngum töfum á stuttum flugleiðum fækkað um allt að 66%. Aflýsingar samdægurs eru 20% færri en í Bandaríkjunum. Kostnaður flugfélaga við að uppfylla þessar kröfur er afar lágur (innan við 250 kr. á farþega) og engin gögn sýna fram á tengsl milli skipulagðra aflýsinga (e.strategic cancellations) og þriggja tíma þröskuldarins.

2. Samræma þarf lista yfir óvenjulegar aðstæður við dómaframkvæmd Evrópudómstólsins.

Að hækka bótaþröskulda samhliða því að stækka listann yfir truflanir sem flokkast sem „óvenjulegar aðstæður“ myndi útiloka enn fleiri farþega frá bótum og veikja reglugerðina verulega. Verkföll flugfélaga mega aldrei flokkast sem óvenjulegar aðstæður þar sem þau eru óaðskiljanleg rekstri flugfélaga. þá ættu flugfélög að hafa frumkvæði að því að upplýsa farþega skriflega um ástæður truflana innan 14 daga, en ekki einungis að beiðni farþega.

3. Tryggja þarf skilvirka framfylgd með fyrirfram útfylltum bóta- og endurgreiðslueyðublöðum.

Lítil þekking neytenda og íþyngjandi verklagsreglur koma í veg fyrir að farþegar nýti  bótarétt sinn. Samkvæmt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fá aðeins 38% farþega sem eiga rétt á þeim bætur. Meirihluti farþega kvartar ekki einu sinni. Þetta hefur leitt til þess að bótakröfufyrirtækjum hefur vaxið fiskur um hrygg.

Krefja ætti flugfélög um að senda fyrir fram útfyllt endurgreiðslu- og bótaeyðublöð fyrir allar truflanir. Þannig yrðu farþegar upplýstir um réttindi sín í rauntíma, og þeim gert auðvelt að sækja bætur, sem drægi úr þörfinni á aðstoð frá þriðja aðila. Eyðublöðin þurfa að vera á formi sem er aðgengilegt fólki með fötlun.

4. Banna þarf óréttlát aukagjöld og óréttláta starfshætti

Flugfélög rukka neytendur í auknum mæli fyrir grunnþjónustu með óréttlátum hætti. Frá gjöldum allt að 10.000 kr. (75 evrur) fyrir handfarangur, sætisgjöld allt að 43.000 kr. (300 evrur) fyrir fjögurra manna fjölskyldu, til prentunargjalda fyrir brottfararspjöld, grafa þessir starfshættir undan gagnsæi í verðlagningu. Þessi gjöld þarf því að banna á evrópska efnahafssvæðinu.

Endurskoðuð reglugerð verður að tryggja að grunnverð farmiða, innihaldi lítinn persónulegan hlut (svo sem veski) og handfarangur. Það er í samræmi við skýra dómaframkvæmd ESB sem staðfestir að ekki má rukka aukalega fyrir handfarangur af sanngjarnri stærð.

Víðtæk notkun mætingaskyldu (e. „No-Show“) kemur í veg fyrir að farþegar geti notað síðari flugleggi mæti þeir ekki í fyrri leggi. Slíkt neyðir þá til að kaupa nýja flugmiða og bera sjálfir allan kostnað sem talið er nema að meðaltali um 110.000 kr. ( 770 evrur) á hverja bókun.

Endurskoðuð reglugerð þarf einnig að tryggja að farþegar eigi rétt á að innrita sig á netinu eða á flugvellinum án þess að þurfa að greiða sérstaklega fyrir það. Farþegar ættu að geta valið að nota brottfararspjald hvort heldur á pappír eða stafrænu formi, eins og Evrópuþingið leggur til. Þetta á að gilda um alla farþega og sérstaklega um farþega með fötlun og hreyfihömlun, þar sem sum flugfélög leyfa ekki innritun á netinu og krefjast innritunar á flugvellinum.

5. Útvíkka þarf gildissvið reglugerðarinnar til allra flugferða til ESB.

Nýlegt krísuástand hefur leitt í ljós að núverandi reglur skilja marga farþega eftir án aðstoðar og án möguleika á að breyta flugleið þegar þeir ferðast til ESB með flugfélögum utan ESB, sem oft leiðir til alvarlegs fjárhagstjóns. Útvíkka þarf gildissviðið svo það nái til allra flugferða til og frá ESB. Slíkt myndi tryggja samræmda neytendavernd, skapa sanngjarna samkeppni milli flugfélaga innan og utan ESB og styrkja eftirlit, að því tilskildu að öll flugfélög sem fljúga til ESB tilnefni lögráðamann innan sambandsins.

6. Styrkja þarf réttindi farþega með fötlun og hreyfihamlaða

Endurskoðuð reglugerð verður að bæta úr þeim gloppum sem enn leiða til útilokunar og mismununar gagnvart farþegum með fötlun, skerta hreyfigetu og börnum.  Í samræmi við tillögur frá Evrópuþinginu og -ráðinu verður að tryggja fullar bætur vegna rangrar meðferðar á hjálpartækjum, vegna tafa eða skorts á aðstoð. Auk þess verður að tryggja samliggjandi sæti án endurgjalds og forgang við byrðingu svo eitthvað sé nefnt.

Við, undirrituð, erum áfram staðráðin í að eiga uppbyggilegt samstarf við viðeigandi stofnanir til að koma á mikilvægum umbótum á réttindum flugfarþega.

Undir rita 34 evrópsk neytendasamtök, sjá hér

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Svik á samfélagsmiðlum

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.