Fréttir

Eldhætta af völdum liþíumrafhlaða

iStock,com/Just_Super

Eldsvoðum af völdum endurhlaðanlegra liþíumrafhlaðna hefur fjölgað á undanförnum árum. Þessa þróun má helst rekja til aukinnar sölu á raftækjum sem innihalda slíkar rafhlöður. Í fréttum hefur mest borið á alvarlegum atvikum þar sem kviknað hefur í út frá rafmagnshlaupahjólum en önnur raftæki á borð við farsíma, spjaldtölvur og rafhjól hafa einnig komið við sögu.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins telur að 50 eldsvoða, á árunum 2019 til 2024, megi rekja til minni raftækja á borð við rafmagnshlaupahjól, rafhjól og farsíma. Sömu þróun má greina á Norðurlöndunum, en í Danmörku hefur eldsvoðum út frá minni raftækjum fjölgað mikið. Þar eru rafgeymar og rafhjól algengasta ástæðan fyrir útköllum. Dæmi eru um að það kvikni í liþíumrafhlöðum sem ekki eru í hleðslu.  Líkur á eldsvoða aukast ef rafhlaðan er af litlum gæðum, hefur orðið fyrir hnjaski eða er ekki geymd við réttar aðstæður. Liþíumrafhlöður eru almennt öruggar ef þær eru notaðar á réttan hátt. „Aðalmálið er að brunavarnir séu í lagi á heimilinu, reykskynjari í öllum rýmum, handslökkvitæki við flóttaleið og eldvarnarteppi í eldhúsinu. Einnig er mikilvægt að allir íbúar þekki flóttaleið á sínu heimili eða íverustað“ segir Guðlaug Kristín Pálsdóttir, sérfræðingur á sviði brunavarna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Af hverju stafar eldhættan?

Eldfimi liþíumrafhlaðna stafar fyrst og fremst af efnasamsetningunni og orkunni sem þær geyma. Á sama tíma og eiginleiki þeirra til að geyma mikla orku í léttu formi gerir þær að vinsælum kosti innihalda liþíumrafhlöður hvarfgjörn og eldfim efni sem geta valdið öryggishættu ef þær eru ekki geymdar við réttar aðstæður eða verða fyrir hnjaski.

Ofhitnun rafhlaðna getur valdið efnaviðbrögðum sem leiða til skammhlaups í rafrás og eftir atvikum hitauppsöfnunar, bruna, gaslosunar og hugsanlegrar sprengingar. Það stafar aðallega af tveimur efnasamböndum; annars vegar vetnisflúoríði (HF) og hins vegar fosfórflúoríði (POF3). Þá er rétt að taka fram að jafnvel þó að skammhlaup eigi sér ekki stað getur skemmd rafhlaða leyst frá sér eldfim efni og eitraðar lofttegundir.

Þegar liþíumrafhlöður brenna getur efnafræðileg uppsöfnun og niðurbrot leitt til myndunar flúorsýru (HF), sem er að hluta til ástæðan fyrir hættunni sem felst í bruna rafhlaðanna. Þá getur flúorsýra í gasformi (POF3) einnig leyst í andrúmsloftið, en hún er mjög eitruð og getur valdið alvarlegum skemmdum á öndunarfærum og öðrum líffærum. Fljótandi gas getur verið lífshættulegt en það er bæði lyktarlaust og ósýnilegt fyrir mannsauganu

Hafðu í huga!

  • Ekki hlaða þegar allir eru sofandi
  • Ekki hlaða nálægt eldfimum efnum
  • Ekki hlaða með skemmdri snúru eða hlaða skemmda rafhlöðu
  • Ekki breiða yfir hleðslubúnað eða rafhlöðuna
  • Ekki hlaða í frosti eða miklum hita
  • Ekki ofhlaða
  • Ekki hlaða tæki í flóttaleið eða útgönguleið
  • Hlaðið þar sem reykskynjari er til staðar
  • Hlaðið á afviknum stað, t.d. í bílskúr eða hjólageymslu
  • Hlaðið á flötu óbrennanlegu undirlagi
  • Notið upprunalegar rafhlöður og hleðslutæki sem fylgir raftækinu

Á vertueldklar.is má finna góðar upplýsingar um brunavarnir heimilisins.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.