Neytendastofa hefur gefið út ákvörðun vegna gjaldtöku Isavia á bílastæðum við Keflavíkurflugvöll. Í ákvörðun Neytendastofu segir að Isavia hafi brotið gegn lögum „með því að upplýsa neytendur ekki um gjald sem greiða þarf fyrir að nota stafrænar greiðslulausnir og með því að birta ekki upplýsingar um þjónustugjald vegna kröfu í heimabanka með áberandi og auðsjáanlegum hætti“. Þetta þýðir að upplýsingar voru ekki nægilega skýrar og er Isavia gert að bæta úr því.
Isavia er einnig talið hafa brotið gegn lögum „með því að gefa neytendum til kynna að til staðar sé sjálfvirkt greiðslukerfi eða sjálfvirk gjaldtaka án þess að taka fram að virkja þurfi það sérstaklega.“
Þá er einnig tekið á fyrirkomulaginu við svokallaða brottfararennu en þar eru ökumönnum gefnar fimm mínútur gjaldfrjálsar. Þar þykir einnig skorta á upplýsingar.
Neytendastofa hefur sektað Isavia um 500.000 kr. og er gert að bæta merkingar.
Neytendasamtökin hafa fengið fjölmargar kvartanir vegna bílastæðagjalda Isavia og kemur álit Neytendastofu því ekki á óvart. Samtökin telja að neytendur eigi rétt á endurgreiðslu hafi þeir:
- greitt fyrir brottfararrennu
- greitt þjónustugjald
- talið að um sjálfvirkt kerfi væri að ræða og því lagst á aukinn kostnaður
Eða þú telur þig að öðru leyti eiga rétt á endurgreiðslu.
Eftirfarandi gæti verið staðlaður póstur á parking@kefairport.is, gott að setja einnig upplýsingar um bílnúmer, staðsetningu bílastæðis og málsatvik:
Góðan dag
Ég óska eftir endurgreiðslu á þjónustugjaldi/öðrum kostnaði að upphæð kr. ___ sem ég innti af hendi dags. ______.
Með góðri kveðju,
Nafn og kennitala
Það skal tekið fram að ákvörðun Neytendastofu er hægt að áfrýja til áfrýjunarnefndar neytendamála og ekki er ólíklegt að Isavia geri það.