CC bílaleiga unir ekki úrskurðum

CC bílaleiga hafnar ítrekað að una úrskurðum Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa sem hafa fallið neytendum í vil.

CC bílaleiga ehf. hefur í sex tilvikum tapað málum sem farið hafa fyrir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Í öllum þeim tilfellum hefur fyrirtækið neitað að verða við kröfum neytenda. Fyrirtækið er því í skammarkrók Neytendasamtakanna og ráða samtökin neytendum frá því að eiga viðskipti við CC bílaleigu ehf.

 

Háar upphæðir í húfi

Kvartanir neytenda eru fjölbreyttar og varða háar upphæðir.

Í einu málinu hafði neytandi afbókað bíl en var þó látinn greiða fullt verð. Nefndin taldi neytandann eiga rétt á 75% endurgreiðslu að upphæð 166.500 kr. enda væru skilmálar um afbókun skýrir.

Í öðru máli komst nefndin að þeirri niðurstöðu að bílaleigan ætti að endurgreiða neytanda 215.000 kr. vegna dráttarþjónustu á biluðum bílaleigubíl.

Í því þriðja féllst nefndin á kröfu neytanda um endurgreiðslu að fjárhæð 73.900 kr. vegna tjóns á bílaleigubíl. Óumdeilt var að tjón hafi orðið á bifreiðinni en nefndin taldi bílaleiguna ekki hafa sýnt fram á umfang þess fjárhaglega tjóns sem hún varð fyrir.

Samtals hefur bílaleigan hafnað kröfum neytenda að fjárhæð 455.495 kr. í þessum þremur málum. Neytendasamtökin líta það alvarlegum augum að fyrirtækið hunsi ítrekað niðurstöður kærunefndarinnar og réttmætar kröfur neytenda. Þau ráða því fólki eindregið frá því að eiga viðskipti við fyrirtækið.

 

Hér má sjá lista yfir fyrirtæki sem eru í skammarkróknum.

Deila:

Facebook
Twitter
Póstur

Fleira áhugavert

Aukefni geta verið allt frá mjög umdeildum efnum sem eru leyfð í einstaka vörum yfir í mjög örugg efni. Kynntu þér málið.
Neytendasamtökin hafa í gegnum árin staðið með neytendum gegn smálánaóværunni. Sú barátta hefur verið bæði löng og ströng.

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.