Fréttir

Meira um mætingarskyldu í flug

Frá árinu 2017 hafa Neytendasamtökin barist fyrir afnámi mætingarskyldu flugfélaga, svokallaðri „No-show“ reglu. Hún er þannig að mæti farþegi ekki í fyrri legg flugferðar, fellir flugfélagið niður alla aðra leggi ferðarinnar án þess að endurgreiða farmiðana. Þessi regla tíðkast ekki í neinum öðrum viðskiptum og er ólögleg að mati Neytendasamtakanna, enda í hæsta máta ósanngjörn.

Í Evrópu hafa neytendasamtök barist mjög gegn skilmálunum. Hægt og sígandi hefur árangur náðst og dómar fallið gegn þessum skilmálum,

Breska flugmálastjórnin birti skýrslu í júní þar sem þessir skilmálar voru sagðir ósanngjarnir, ógagnsæir og halla verulega á neytandann. Þó flugmálastjórnin aðhefðist ekki í málinu að sinni, segir í skýrslunni að neytendur gætu sótt fyrirtækin til saka fyrir skilmálana. Bresku neytendasamtökin (Which?) mótmæltu þessari afstöðu og hvöttu stjórnvöld til að stöðva þessa lensku flugfélaga með lagasetningu.

Belgísku Neytendasamtökin TestAchats hefur stefnt Air France og KLM fyrir mætingarskylduna og er dóms að vænta í september.

Dómur í mætingarskyldumáli gegn Air France féll í júnílok. Þar var Air France dæmt til að endurgreiða farþega €128,02 vegna kaupa á farmiða, €500 í miskabætur og €800 í málskostnað. Dómurinn tók þó ekki beint á mætingarskyldunni.

Neytendasamtökin hafa ítrekað beint því til Icelandair að fyrirtækið láti af mætingarskyldunni, enda séu það furðulegir viðskiptahættir að meina viðskiptavinum að nýta þjónustu sem þeir hafa greitt fyrir. Boltinn er hjá Icelandair og mun mætingarskylda í flugferðir vonandi heyra sögunni til innan skamms.

Fréttir í sama dúr

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Aðalfundur 22. október

Staðan í Vaxtamálinu

Smálánabaráttan

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.