Fréttir

Nýtt Neytendablað

iStock.com/LightFieldStudios
  • bágborinn barnamatur, boð, bönn og brask

Nýtt Neytendablað er nú á leið til félagsmanna, fullt af fjölbreyttum fréttum og umræðu um neytendamál.

Meðal annars er greint frá áhugaverðum rannsóknum á barnamat sem systursamtök okkar í  Noregi og Bretlandi stóðu fyrir. Þar kemur meðal annars fram að úrvalið af tilbúnum barnamat í verslunum er mikið en gæðin ekki alltaf eftir því. Barnamatur er gjarnan alltof sætur, of maukaður og næringarsnauður. Ekkert bendir til annars en að staðan sé eins hér á landi.

Tímamótalög hafa verið sett í Noregi, því bannað verður að beina markaðssetningu á óhollustu að börnum yngri en 18 ára. Að sama skapi hafa Norðmenn lagt blátt bann við sölu á koffíndrykkjum til yngri en 16 ára.

Skaðleg efni er því miður gjarnan að finna í algengum neysluvörum, líka vörum ætluðum börnum. Opinber vottun eins og norræni Svanurinn hjálpar neytendum að velja vörur sem framleiddar eru á eins umhverfisvænan hátt og hægt er. Í blaðinu er viðtal við framkvæmdastjóra Svansins á Íslandi.

Í haustútgáfu Neytendablaðsins 2025 er einnig fjallað um bílastæðabraskið,  smjaðrandi gervigreind, túnfisk, hótelstjörnur, falsumsagnir, svikastarfsemi á Booking og margt fleira.

Neytendablaðið er sent öllum félögum Neytendasamtakanna. Hægt er að gerast félagi hér.

Þá er hægt að gerast hollvinur samtakanna hér.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.