– Ofneysla, tryggingar, súrdeigsbrauð og fals á Facebook
Neytendablaðið ætti að hafa borist félagsmönnum, sneisafullt af fjölbreyttum fréttum og umræðu um neytendamál.
Allt sem þú þarft að vita um tryggingar – Vátryggingar vega þungt í heimilisbókhaldinu og eru með því flóknari samningum sem við gerum. Ef tjón verður getur skipt öllu máli hvernig neytandi bregðast við. Í blaðinu má finna goðar upplýsingar á mannamáli.
Neysluæði á netinu – Það er ekkert lát á pakkasendingum frá Kína þar sem Temu og Shein fara fremst í flokki. Ýmsum sálfræðibrögðum er beitt til að fá neytendur til að kaupa meira. Trikkin virka vel eins og Helga Soffía Sigurðardóttir komst að í rannsókn sinni.
Féflettir á Facebook – Mikið er um svik og pretti á Facebook. Því miður falla margir fyrir svikurum sem virðast geta athafnað sig óáreittir á samfélagsmiðlum.
Skert gæði- sama verð – Dæmi eru um að aðalinnihaldsefni vöru sé skipt út fyrir annað ódýrara. Þetta er kallað gæðaskerðing og er næsti bær við magnskerðing. Þá er magn vöru minnkað án þess að neytendur verði þess varir.
Kaup á notuðum bíl – Margar fyrirspurnir berast Neytendasamtökunum vegna viðskipta með notaða bíla. Að mörgu er að hyggja eins og lesa má í blaðinu.
Hvað er súrdeigsbrauð (og hvað ekki)? Mathias Spoerry bakari í Svarfaðardal svarar því.
Símsölubann í Svíþjóð – Svíar eru orðnir langþreyttir á símsölu. Lagt er til að hún verði bönnuð með öllu.
Neytendablaðið er sent öllum félögum Neytendasamtakanna. Hægt er að gerast félagi hér.
Þá er hægt að gerast hollvinur samtakanna hér.