Fréttir

Réttindi farþega vegna boðaðs verkfalls flugumferðarstjóra

iStock.com/structuresxx

Flugumferðarstjórar hafa boðað verkfallsaðgerðir í næstu viku náist ekki samningar.

Samkvæmt fréttatilkynningu hefst verkfallið kl. 22 á sunnudagskvöld og stendur til kl. 3 aðfaranótt mánudags. Aðgerðirnar ná til aðflugssvæða Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvalla og geta haft áhrif á áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli.

Neytendasamtökin minna á að farþegar sem verða fyrir töfum eða aflýstum flugferðum vegna verkfalls eiga rétt á upplýsingum og ákveðinni þjónustu frá flugfélögum. Þjónustan getur meðal annars falið í sér:

  • máltíð og hressingu í samræmi við lengd tafa,
  • símtal eða aðgang að samskiptum,
  • gistingu ef þörf krefur,
  • flutning til og frá gististað.

Verkföll flugumferðarstjóra teljast til óviðráðanlegra aðstæðna samkvæmt evrópsku reglugerðinni um réttindi flugfarþega. Því eiga farþegar ekki rétt á stöðluðum bótum vegna tafa eða aflýsinga sem rekja má til verkfallsins.

Neytendasamtökin hvetja farþega til að fylgjast með upplýsingum frá flugfélögum og flugvöllum og leita réttar síns ef þjónustu er áfátt.

Nánari upplýsingar um réttindi flugfarþega vegna flugröskunar má nálgast hér.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.