Undanfarna daga hefur mikið borið á aflýsingum hjá Icelandair. Að gefnu tilefni vilja Neytendasamtökin minna neytendur á réttindi farþega þegar flugi er aflýst.
1. Val á milli endurgreiðslu eða endurbókunar
Við aflýsingu flugs eiga farþegar rétt á að velja á milli eftirfarandi úrræða:
– Hætta við flug og fá farmiða endurgreiddan
– Annað flug við fyrsta tækifæri
– Annað flug síðar meir
2. Réttur á aðstoð og þjónustu
Ef farþegar velja að halda ferð sinni áfram eiga þeir rétt á aðstoð frá flugfélaginu á meðan beðið er eftir nýju flugi. Slík aðstoð getur meðal annars falið í sér:
- máltíð og hressingu í samræmi við lengd tafa,
- símtali,
- gistingu ef þörf krefur,
- flutning til og frá gististað.
Mikilvægt er að hafa í huga að þessi réttur fellur niður ef farþegi velur að fá fargjaldið endurgreitt og hættir við ferðina.
3. Réttur til skaðabóta
Ef flugi er aflýst með minna en tveggja vikna fyrirvara geta farþegar jafnframt átt rétt á stöðluðum skaðabótum. Upphæð bóta getur numið 250-600 evrum og fer eftir lengd flugs, hvenær upplýst var um aflýsinguna og hver nýr brottfarar- og komutími er.
Farþegar geta reiknað upphæð bóta í Flugreikni ECC.
Bótaréttur er hins vegar ekki fyrir hendi ef aflýsing er vegna óviðráðanlegra aðstæðna, svo sem verkfalls þriðja aðila, óveðurs eða náttúruhamfara.
Rétt er að taka fram að aflýsingar vegna mönnunarvanda eða kjaradeilna innan flugfélags teljast almennt ekki til óviðráðanlegra aðstæðna og geta því leitt til bótaskyldu.
Leitaðu réttar þíns
Neytendasamtökin hvetja farþega til að leita réttar síns ef flugi þeirra er aflýst.
Fyrsta skrefið er að hafa samband við flugfélagið með því að fylla inn í þartilgert eyðublað á kvörtunarsíðu flugfélagsins.
Ef flugi frá Íslandi var aflýst geta farþegar borið ágreining um bótaskyldu undir Samgöngustofu.
Nánari upplýsingar um réttindi flugfarþega vegna flugröskunar má nálgast hér.