Fréttir

Réttur flugfarþega vegna gjaldþrots Play

iStock.com/dongfang zhao

Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður.

Neytendasamtökin hafa því tekið saman hvaða úrræði standa neytendum til boða.

Endurgreiðsla á flugmiðum

Hafi flugmiðar verið greiddir með greiðslukortum er nærtækast að hafa samband við þann viðskiptabanka sem sér um greiðslukortið og óska eftir aðstoð við að fá færsluna bakfærða. Einnig er hægt að setja sig í samband við kortafyrirtækin og óska eftir aðstoð þeirra.

Ef farmiðar hafa aftur á móti verið greiddir með gjafabréfi, millifærslu eða með peningum stendur fólki eflaust ekki annað til boða en að leggja inn almenna kröfu á hendur flugfélagsins eða eftir atvikum lýsa almennri kröfu í þrotabú félagsins.

Pakkaferð

Hafi flugmiðar verið keyptir sem hluti af pakkaferð ber seljandi pakkaferðar ábyrgð á að koma farþegum sínum á áfangastað og til baka aftur.

Þeir sem keypt hafa pakkaferð eða eru nú þegar í pakkaferð, og flughluti ferðarinnar er með flugfélagi sem stöðvar rekstur, ber að snúa sér til seljanda pakkaferðarinnar varðandi frekari upplýsingar.

Réttur til bóta

Farþegar þurfa að lýsa almennri kröfu í þrotabú Play til að sækja rétt sinn til bóta. Það er fyrst hægt þegar búið er að lýsa eftir kröfum í búið. Því miður er hætt við að kröfur neytenda fáist ekki bættar þar sem aðrar kröfur ganga fyrir, svo sem launakröfur og opinber gjöld.

Farþegar geta átt rétt á stöðluðum skaðabótum á grundvelli Evrópureglugerðar um réttindi flugfarþega sé fluginu aflýst með minna en tveggja vikna fyrirvara. Fjárhæð bótanna fer eftir því hvert og hvaðan er verið að fljúga. Fyrir flug sem er á milli 1.500 km og 3.500 km (eða flug á milli tveggja EES landa) þá eru bæturnar 400 evrur á hvern farþega. Ef flugið er lengra en 3.500 km (t.d. frá Íslandi til Bandaríkjanna) þá er upphæð bótanna 600 evrur á hvern farþega.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.