Fréttir

Sigur í vaxtamáli gegn Íslandsbanka

iStock.com/DNY59

Hæstiréttur hefur nú kveðið upp dóm í fyrsta Vaxtamálinu, af fimm, sem Neytendasamtökin hafa rekið fyrir dómstólum. Dómurinn er afar skýr: Íslandsbanka er óheimilt að breyta vöxtum samkvæmt huglægum viðmiðum í lánaskilmálum hans. Samkvæmt dómnum má bankinn bara líta til vaxtabreytinga Seðlabankans. Sú ákvörðun leiðir til þess að ekki var fallist á fjárkröfur stefnanda þar sem Seðlabankavextir höfðu hækkað meira en vextir lánsins, en lánið var tekið árið 2021.

Á þriðja þúsund manns hafa tekið þátt í vaxtamálinu auk þess sem samtökin hafa notið stuðnings VR og BSRB við málareksturinn.

Áhrif dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu

Ljóst þykir að dómurinn hefur fordæmisgildi fyrir þau fjögur Vaxtamál sem Hæstaréttur hefur veitt áfrýjunarleyfi. Ekki er komin dagsetning á þau mál.

Hvað þarf ég að gera?

Sértu enn að greiða af láninu þínu er ekki þörf á að gera neitt að svo stöddu.

Samkvæmt lögum fyrnast almennar fjárkröfur á fjórum árum. Hafir þú greitt upp lán á bilinu nóvember 2021 til enda árs 2022 gætu verið hætta á að mögulegar fjárkröfur fyrnst. Til að koma í veg fyrir það, er hægt að slíta fyrningu, sjá hér.

Um hvað snýst Vaxtamálið?

Neytendasamtökin telja flest fasteignalán með breytilegum vöxtum ólögleg. Skilmálar bankanna eru bæði ósanngjarnir samkvæmt c-lið 36. gr. samningalaga og uppfylla ekki skýrleikaákvæði 34. gr. laga um fasteignalán til neytenda.

Málin fimm:

Mál E-2539/2021 gegn Íslandsbanka vegna fasteignaláns að fjárhæð 57 mkr. tekið í janúar 2021.
-Héraðsdómur óskaði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins, sem var birt 23. maí 2024.
-Málsmeðferð í Héraðsdómi Reykjaness var 15. október 2024. Dómur féll 12. nóvember 2024 og bankinn var sýknaður.
-Hæstiréttur samþykkti áfrýjunarbeiðni og fór málið beint til Hæstaréttar án viðkomu í Landsrétti.
-Málsmeðferð var í Hæstarétti 7. maí 2025. 
-Þann 27. maí 2025 tók Hæstiréttur ákvörðun að málið skyldi endurflutt í heild sinni þann 16. september 2025 í því skyni að fá afstöðu málsaðila til fjögurra atriða. 

-Þann 14. október 2025 kvað Hæstiréttur upp dóm og ógilti alla huglæga þætti sem höfðu áhrif á vaxtabreytingar lánsins og tók þannig að öllu leyti undir kröfur Neytendasamtakanna. 

Mál E-5932/2021 gegn Landsbankanum vegna fasteignaláns að fjárhæð 6,5 mkr. tekið 2019 og greitt upp 2021.
-Héraðsdómur óskaði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins, sem var birt 23. maí 2024.
-Málsmeðferð var í Héraðsdómi Reykjavíkur 21. febrúar 2025.
-Bankinn var sýknaður með dómi 20. mars 2025.
-Hæstiréttur samþykkti áfrýjunarbeiðni og mun málið því fara beint til Hæstaréttar án viðkomu í Landsrétti. Dagsetning málsmeðferðar liggur ekki fyrir.

Mál E-5933/2021 gegn Landsbankanum vegna tveggja skuldabréfalána að fjárhæð 2,3 mkr. tekin 2006 og greidd upp 2021.
-Bankinn hlaut sektardóm í héraði 7. feb 2023. Málinu var áfrýjað til Landsréttar.
-Málsmeðferð í Landsrétti (mál 429/2023) var 16. janúar 2025. Bankinn var sýknaður með dómi 13. febrúar 2025.
-Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni. Dagsetning málsmeðferðar liggur ekki fyrir.

Mál E-5931/2021 gegn Arion banka vegna verðtryggðs fasteignaláns að fjárhæð 5,4 mkr. tekið 2017 og greitt upp 2021.
-Bankinn hlaut sýknudóm í héraði 7. feb 2023. Málinu var áfrýjað til Landsréttar.
-Málsmeðferð í Landsrétti (mál 333/2023) var 16. janúar 2025. Bankinn var sýknaður með dómi 13. febrúar 2025.
-Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni. Dagsetning málsmeðferðar liggur ekki fyrir.

Mál E-2537/2021 gegn Íslandsbanka vegna skilmála sem Hæstiréttur hefur þegar lýst ólögmætan með dómi í máli nr. 623/2016. Við teljum bankann hafa brugðist rangt við dóminum og haldið áfram að innheimta upphaflega vexti lánsins, þrátt fyrir að vaxtaskilmáli veðskuldabréfsins hafi verið dæmdur ólögmætur. Lánið var tekið 2007 og greitt upp 2021. Stefnufjárhæðin er 5,9 mkr.
-Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjaness 27. apríl 2023
-Bankinn var sýknaður með dómi 25. maí 2023. Málinu var áfrýjað til Landsréttar.
-Málsmeðferð í Landsrétti  (mál 462/2023) var 16. janúar 2024.Bankinn var sýknaður með dómi 13. febrúar 2025.
-Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni. Dagsetning málsmeðferðar liggur ekki fyrir.

Málsmeðferð „systurmálsins“, Neytendastofu gegn Íslandsbanka (mál nr. 99/2022), sem einnig var vísað til EFTA-dómstólsins og hlaut sömu dómsorð, var á dagskrá Landsréttar 16. janúar 2025. Í dómi réttarins 13. febrúar 2025 var Neytendastofa sýknuð af kröfum bankans og úrskurður Neytendastofu um að ákvæði í samningum bankans stangist á við lög stendur. Óskað var eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. 

Atburðarás

2019 Neytendasamtökin hefja rannsókn á vaxtabreytingum bankanna

2021 Lántakar fyrir atbeina Neytendasamtakanna stefna Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum í fimm fordæmisgefandi málum:

-Tvö málanna (gegn Ísb og Lais) vegna lána sem tekin voru eftir 2017

-Þrjú (gegn Ab, ‚isb og Lais) vegna lána sem tekin voru fyrir 2017

2022 Héraðsdómur vísar tveimur málanna (lán eftir 2017) til EFTA dómstólsins

2024 Ráðgefandi álit EFTA dómstólsins tekur í einu og öllu undir með Neytendasamtökunum

2024 Héraðsdómar Reykjavíkur og Reykjaness sýkna bankana í báðum málunum og þeim áfrýjað beint til Hæstaréttar

2025 Landsréttur sýknar bankana í hinum þremur málunum og þeim áfrýjað til Hæstaréttar

2025 Dómur Hæstaréttar í fyrsta málinu.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.