Stjórn Neytendasamtakanna ályktaði svo á fundi sínum 4. mars 2026:
Vonbrigði með verðbólgu
Stjórn Neytendasamtakanna lýsir yfir gífurlegum vonbrigðum með háa verðbólgu. Stjórn skorar á stjórnvöld og atvinnulíf að róa að því öllum árum að koma böndum á hana. Í óáran sem þessari verða fyrirtækjaeigendur að hemja arðsemiskröfur og stjórnvöld að létta álögur. Neysluskattar líkt og fyrirhugaður sykurskattur er olía á verðbólgubálið. Neytendasamtökin hvetja stjórnvöld þess í stað að fella niður virðisaukaskatt á hollustuvörum og til að innleiða Nutri-Score kerfið hér á landi. Slíkt slær tvær flugur í einu höggi: dregur úr verðbólgu og auðveldar neytendum að velja hollt. Frekari upplýsingar má finna hér: https://ns.is/malaflokkar/einfaldar-merkingar-audvelda-valid/
Úrbætur á vátryggingamarkaði
Stjórn Neytendasamtakanna vekur athygli stjórnvalda á nýútkominni skýrslu um vátryggingamarkaðinn. Settar eru fram sjö tillögur að úrbótum, sem snúa að því að auka sanngirni, samræmingu og draga úr kostnaði. Samhliða myndu iðgjöld lækka, sem yrði bæði búbót fyrir heimilin og drægi úr verðbólgu. Skýrsluna og tillögurnar má finna hér: https://ns.is/tryggingaskyrsla-neytendasamtakanna-2026/