Fréttir

Varist Tryggingar og ráðgjöf ehf.

iStock.com/ Elena Ivanova

-Tryggingar og ráðgjöf í skammarkróknum

Neytendasamtökin vekja athygli á að Tryggingar og ráðgjöf ehf. hafa tilkynnt að fyrirtækið ætli ekki að fara að úrskurði Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa í máli númer  í máli nr. 30/2021, sem kveðinn var upp 28. janúar sl. Samkvæmt úrskurðinum ber Tryggingum og ráðgjöf að greiða viðskiptavini sínum skaðabætur að fjárhæð 342.221 krónur. 

eigin sögn eru Tryggingar og ráðgjöf „stolt af því að hafa í hart nær 20 ár aðstoðað viðskiptavini … Bæði á erfiðum tímum sem og góðum þá erum við alltaf til staðar fyrir þig, í gleði og sorg hjálpum við þér að lifa lífinu við öryggi.“

Neytendasamtökin hafa skorað á Tryggingar og ráðgjöf að hlíta úrskurðinum og greiða viðskiptavini sínum tafarlaust samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar, en forsvarsmenn þess hafa engu svarað.

Það er mikilvægt fyrir neytendur að geta leitað réttar síns á ódýran og einfaldan hátt þegar á þeim er brotið. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa er ein af þeim nefndum sem tekur á kvörtunum neytenda og er hún skipuð fulltrúum atvinnulífsins, neytenda og ráðuneytis. Neytendur geta lagt ágreiningsmál við seljendur fyrir nefndina  og fengið skjóta úrlausn mála sinna utan dómstóla. Á undanförnum tveimur árum hefur nefndin úrskurðað í vel á annað hundrað málum, þar af neytendum í vil að hluta eða að fullu í 65 málum.

Þó er hængur á starfi nefndarinnar, og sá er nokkur stór;  því þó að langflest fyrirtæki uni niðurstöðu nefndarinnar eru örfáir svartir sauðir sem ekki láta segjast og una ekki úrskurðum hennar. Á rúmum tveimur árum hafa fimm fyrirtæki valið að hlíta ekki úrskurði nefndarinnar. Oftast er um að ræða það lágar upphæðir, frá fáum tugum þúsunda upp í fáein hundruð þúsunda, að ekki tekur því fyrir neytendur að fara með málin fyrir dómstóla, þrátt fyrir að þau ynnust að líkindum.

Vekur þetta augljósar spurningar um hvort ekki sé nauðsyn að koma á smákrafnarétti (e. Small Claims Court), sem fyrirtæki yrðu að hlíta, eða auðvelda fólki að sækja rétt sinn á annan hátt.

Hér má sjá nöfn þeirra fyrirtækja sem ekki hlíta úrskurði Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa og hér er listinn á vef Neytendasamtakanna. 

Fréttir í sama dúr

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Aðalfundur 22. október

Staðan í Vaxtamálinu

Smálánabaráttan

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.