Fréttir

Verð á leiki í Bestu deildinni

iStock.com/baris canverenler

Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt landsins. Efstu deildir karla og kvenna í knattspyrnu rúlluðu af stað fyrir skömmu og hafa landsmenn verið duglegir að mæta á völlinn í maíblíðunni.

Naskur neytandi vakti athygli Neytendasamtakanna á því hversu mikill munur er á miðaverði innan deildanna og milli leikja. Samtökin réðust í samanburðarkönnun á miðaverði og var stuðst við upplýsingar af Stubbi, miðasölukerfi sem nær öll lið deildanna nýta sér. Verðið miðast við 26. maí en það skal tekið fram að á þeim stutta tíma sem verðkönnun þessi var í vinnslu var eitthvað um að miðaverð breyttist en ávallt til lækkunar. Þá er aldurstakmark fyrir börn breytilegt en gjarnan er miðað við 16 ára aldur.

Besta deild karla

Algengasta miðaverð fyrir fullorðna í Bestu deild karla er 2.500 kr. Hæsta miðaverð fyrir stakan leik er hjá KR; 3.500 kr. og lægsta verð er hjá FH, Fram og Vestra; 2.000 kr. Málið er þó ekki alveg svo einfalt því KR býður miðann á 1.500 kr. fyrir ungmenni á aldrinum 16-23 ára. Hið sama gerir Vestri en þar er aldursbilið 17-20 ára. Hjá Fram kostar svo meira að kaupa stakan miða á vellinum á leikdag og munar þar 1.000 kr. Ekki er loku fyrir það skotið að svo sé einnig hjá fleiri liðum en þá væri þá eðlilegt að það kæmi fram í miðasölukerfi Stubbs.

Börn fá frítt á leiki hjá KR, Fram, ÍA og ÍBV. Miðinn fyrir börn kostar 500 kr. hjá Aftureldingu, Breiðablik, FH, Stjörnunni, Val, Víkingi og KA. Nokkur lið bjóða einnig afslátt fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja.

Ef miðað er við fjögurra manna fjölskyldu (tveir fullorðnir og tvö börn) væri fjölskyldan í flestum tilfellum að greiða 6.000 kr. Aldurssamsetning fjölskyldunnar skiptir þó máli. Ef um er að ræða fjölskyldu með tvo unglinga yfir 16 ára aldri greiðir hún hæst 10.000 kr. en lægst 7.000 kr. hjá Vestra.

Besta deild kvenna

Í bestu deild kvenna er hæsta staka miðaverð fyrir fullorðna 2.500 kr. hjá Þrótti, Vikingi og Þór/KA. Miðinn kostar 2.000 kr. hjá FH, Fram, Stjörnunni og Tindastól og 1.500 kr. hjá Breiðabliki, FHL og Val. Börn fá frítt inn á leiki hjá FHL, Fram, Stjörnunni, Þrótti, Tindastól og Þór/KA annars er miðaverðið 500 kr. Miðaverð er almennt lægra í Bestu deild kvenna en í karladeildinni. Dýrast væri fyrir fjögurra manna fjölskylduna okkar að fara á leik með Víkingi eða 6.000 kr en ódýrast að fara á leik með sameinuðu liði FHL (Fjarðabyggð/Leiknir/ Höttur) eða 3000 kr. Sé um að ræða foreldra og tvo unglinga yfir 16 ára aldri er lægsta verð 6.000 kr. hjá Breiðbliki, FHL og Val en hæsta verð væri 10.000 kr. hjá Þrótti, Víkingi og Þór/KA.

Árskortin hagstæð

Flest liðin bjóða sínum dyggustu stuðningsmönnum upp á fríðindi í formi afsláttarkorta og kennir þar ýmissa grasa. Til dæmis bjóða nokkur félög upp á mánaðarkort, önnur selja matarkort en öll félög bjóða upp á árskort í einhverju formi og þau geta margborgað sig. Ódýrasta árskortið kostar 15.000 kr. en það dýrasta 150.000 kr. Þá bjóða Breiðablik, Valur, KR, ÍA og KA fólki um og yfir tvítugsaldurinn upp á ungmennaárskort, sem eru ódýrari en hefðbundin árskort.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.