Fréttir

Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024

iStock.com/Sensvector

Aðalfundur Neytendasamtakanna var haldinn þriðjudaginn 22.október í húsakynnum samtakanna að Guðrúnartúni 1. Auk venjulegra aðalfundarstarfa bar hæst að nýjar samþykktir samtakanna voru samþykktar einróma. Helstu breytingarnar felast í að aðalfundur verður framvegis að vori en ekki hausti, heimildir til rafrænna kosninga voru styrktar, tímatakmarkanir á stjórnarsetu voru afnumdar, sem og tilkynningaskylda um þátttöku á aðalfundi. Samþykktir Neytendasamtakanna er að finna hér.

Á hverju ári er kosið um helming stjórnar samtakanna til tveggja ára og voru eftirfarandi sjálfkjörin í stjórn 2024 – 2026: Auður Alfa Ólafsdóttir, Benjamín Julian, Flóki Guðmundsson, Guðmundur Gunnarsson, Pálmey Helga Gísladóttir og Virpi Jokinen. Þau Benjamín, Flóki og Virpi eru nýliðar í stjórninni. Fyrir í stjórn 2023-2025 eru þau Hildigunnur Hafsteinsdóttir, Margrét Dóra Ragnarsdóttir, Salka Sól Styrmisdóttir, Sigurður Másson, Stefán Hrafn Jónsson og Þórarinn Stefánsson. Fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Ólafi B. Einarssyni, Þóreyju S. Þórisdóttur og Sigurlínu Sigurðardóttur var þakkað fyrir góð störf. Breki Karlsson var einn í kjöri til formanns og því sjálfkjörinn formaður til næstu tveggja ára.

Aðalfundur Neytendasamtakanna samþykkti jafnframt eftirfarandi tvær ályktanir um raforkuverð til heimila og um úrvinnslusjóð. Þær má sjá hér:

Rafmagnsverð til heimila
Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024 krefst þess að stjórnvöld setji arðsemisþak á sölu rafmagns til heimila. Raforka er ein forsenda búsetu á Íslandi og afar ólík vörum á frjálsum markaði. Heimilin neyðast nú til að keppa við stórfyrirtæki um rafmagn, sem meðal annars hefur leitt til 13% verðhækkunar síðustu tólf mánuði.
Heimilin nota aðeins 4,6% af allri framleiddri raforku á Íslandi og stjórnvöld verða að tryggja þeim ekki bara afhendingaröryggi heldur einnig verðöryggi.
Með arðsemisþaki á sölu rafmagns til heimila væri raforka sett undir sama hatt og kalt og heitt vatn og flutningur á raforku, þar sem nú þegar er þak á arðsemi.
Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að stórir raforkuframleiðendur verði skyldaðir til að veita 5% af framleiðslu sinni til heimila og selja með takmarkaðri arðsemi. Ódýrt rafmagn til heimila er réttmætt gjald fyrir nýtingu sameiginlegra náttúruauðlinda og stuðlar að þjóðarsátt um nauðsynlegar virkjanir.

Úrvinnslusjóður
Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að ráðherra skipi fulltrúa neytenda og fulltrúa umhverfis- og náttúruverndar í stjórn Úrvinnslusjóðs.
Úrvinnslusjóður er í eigu ríkisins, fjármagnaður af neytendum, og gegnir mikilvægu hlutverki við innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Það skýtur skökku við að fulltrúar atvinnulífsins skipi meirihluta stjórnar en að hvorki fulltrúar neytenda né fulltrúar umhverfis- og náttúruverndar eigi þar sæti.
Aðalfundur Neytendasamtakanna gerir alvarlegar athugasemdir við að starfshópur um endurskoðun laga um Úrvinnslusjóð, sem á að skila tillögum til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eigi síðar en 15. nóvember 2024, hafi enn ekki fundað með Neytendasamtökunum, sem eru þó fulltrúi eins stærsta hagaðilans, neytenda og heimila. Aðalfundurinn krefst þess að starfshópurinn fundi með Neytendasamtökunum og taki tillit til athugasemda þeirra við vinnslu tillagna til ráðherra.
Þá gerir aðalfundur athugasemd við að skipaður formaður starfshópsins sé jafnframt stjórnarformaður Úrvinnslusjóðs. 

Fréttir í sama dúr

Droppshipping – ekki er allt sem sýnist

Afstaða stjórnmálaflokkanna til neytendamála

Breytingar á búvörulögum gegn stjórnarskrá

Ályktanir aðalfundar

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.