Fréttir

Ályktun aðalfundar 2026 og ný stjórn

Aðalfundur feature image

Kröftugum aðalfundi Neytendasamtakanna var að ljúka. Formaður og stjórn voru sjálfkjörin. En á hverju ári er kosið um 6 stjórnarliða af 12, til setu í 2 ár og annað hvert ár er kosið um formann til setu, einnig til tveggja ára.

Í stjórn taka sæti nýliðarnir Elín Jónsdóttir, Henry Alexander Henrysson, Páll Ásgeir Davíðsson og Þórólfur Geir Matthíasson. Jafnframt sitja áfram þær Auður Alfa Ólafsdóttir og Virpi Jokinen. Eru þau kjörin til ársins 2028.

Í fyrra voru kjörin til setu í stjórn til 2027: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, Margrét Dóra Ragnarsdóttir, Salka Sól Styrmisdóttir, Sigurður Másson, Stefán Hrafn Jónsson og Þórarinn Stefánsson.

Ályktun aðalfundar:

Aðalfundur Neytendasamtakanna lýsir yfir miklum vonbrigðum með háa verðbólgu og bendir stjórnvöldum á eftirfarandi aðgerðir til að sporna við henni:

– Gera þarf þær úrbætur sem bent er á í skýrslu Neytendasamtakanna um vátryggingamarkaðinn. Þær myndu bæði lækka iðgjöld verulega og draga úr verðbólgu.

– Setja þarf hámarksverð á raforku til heimila líkt og er á heitu vatni, köldu vatni og á flutningi rafmagns. Slíkt hámark er í gildi í Noregi þar sem heimilum er tryggð raforka á verði sem samsvarar rúmlega 6 íslenskum krónum á kWst, eða á um helmingi lægra verði íslenskum heimilum býðst í dag.  

– Fella þarf niður virðisaukaskatt á hollum matvörum og innleiða næringarmerkingar sem auðvelda neytendum að velja hollustuvörur.

– Fella þarf niður virðisaukaskatt af viðgerðum, enda er rétturinn til viðgerðar mikilvægur hringrásarhagkerfinu og lengri líftími forsenda sjálfbærni. Fáir aðilar gera við og berjast í bökkum. Einungis eru 6 skósmiðir starfandi á Íslandi og fer fækkandi. Verkstæði sem gera við rafeindavörur eru enn færri. Verði ekkert aðhafst mun innan tíðar ekki hægt að láta gera við á Íslandi.   

-Setja þarf þak á innheimtukostnað en Neytendasamtökin hafa lengi haldið þessari kröfu á lofti. Slíkt þak þekkist í nágrannalöndunum.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.