Fréttir

Kraftmikill aðalfundur og sterkar ályktanir

Kraftmikill aðalfundur Neytendasamtakanna var haldinn í gær 10. apríl 2025. Sjálfkjörið var í stjórn, en hverju ári er kosið um 6 stjórnarmenn af 12, til setu í 2 ár. Ekki var kosið um formann í þetta sinn, en annað hvert ár er kosið um formann til setu í 2 ár.

Í stjórn Neytendasamtakanna sitja nú  frá 2025 til 2027: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, Margrét Dóra Ragnarsdóttir, Salka Sól Styrmisdóttir, Sigurður Másson, Stefán Hrafn Jónsson og Þórarinn Stefánsson.

Í stjórn 2024 til 2026 eru: Auður Alfa Ólafsdóttir, Benjamín Julian, Flóki Guðmundsson, Guðmundur Gunnarsson, Pálmey Helga Gísladóttir og Virpi Jokinen. Formaður er Breki Karlsson, kjörinn til 2026.

Hér má ská fundargögn

Aðalfundur Neytendasamtakanna samþykkti eftirfarandi ályktanir um rafmagnsverð til heimila og stefnu í neytendamálum:

Rafmagnsverð til heimila

Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að stjórnvöld tryggi heimilum öruggt rafmagn á viðráðanlegu verði. Þau nota innan við einn tuttugasta þeirrar raforku sem framleidd er á Íslandi.
Rafmagnsverð hefur hækkað um rúm 16% á síðustu 12 mánuðum – fjórfalt umfram verðbólgu – og stefnir enn hærra án aðgerða. Á köldum svæðum, þar sem raforka er notuð til húshitunar, eru dæmi um tugþúsunda króna hækkanir á heimili.
Raforka til heimila ætti að falla undir arðsemisþak líkt og gildir um kalt og heitt vatn og flutning raforku.
Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að stórir raforkuframleiðendur verði skyldaðir til að veita að lágmarki 5% af framleiðslu sinni til heimila og selja hana með takmarkaðri arðsemi. Ódýrt rafmagn til heimila skilar almenningi hluta auðlindarentunnar af sameiginlegum orkulindum, og er mikilvægt skref í átt að sátt um orkuöflun og náttúruvernd.

Stefna í neytendamálum

Aðalfundur Neytendasamtakanna fagnar þingsályktunartillögu atvinnuvegaráðherra um stefnu í neytendamálum sem nú liggur fyrir Alþingi (þingmál 149). Stefnan er metnaðarfull og nær aðgerðaáætlunin til margra mikilvægustu þátta málaflokksins.
Fundurinn vekur jafnframt athygli á nýlegri málaskrá Neytendasamtakanna þar sem finna má greinargerð um 22 nauðsynlegar breytingar á lögum og reglugerðum til að efla rétt og vernd neytenda í samræmi við meginmarkmið og aðgerðaáætlun stefnunnar. Margar tillagnanna kalla ekki á aukið fjármagn en hafa engu að síður veruleg áhrif til eflingar neytendarétti.
Neytendasamtökin eru reiðubúin til samstarfs við stjórnvöld um framgang þessa mikilvæga málaflokks.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.