Fréttir

Réttindi flugfarþega og mögulegur eldsneytisskortur

iStock.com/waynerd

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf í dag út leiðbeiningar „til að draga úr áhrifum ástandsins í Mið-Austurlöndum á fluggeirann í Evrópu.“

Meðal lykilþátta leiðbeininganna eru að:

– Flugfélög verða að tryggja gagnsæi í verðlagningu og eru minnt á að birta ávallt endanlegt verð farmiða, sem innifelur alla óhjákvæmilega verðþætti. Flugfélög geta ekki lagt á eldsneytisálag afturvirkt.

– Flugfarþegar halda fullum réttindum sínum sé flugi aflýst. Flugfélag er einungis undanþegið bótagreiðslu, geti það sannað að aflýsing stafi af óvenjulegum aðstæðum, svo sem eldsneytisskorti á staðnum. Framkvæmdastjórnin telur að hátt eldsneytisverð teljist ekki til óvenjulegra aðstæðna.

Neytendasamtökin meta það sem svo að leiðbeiningarnar eigi einnig við um allt flug til og frá Íslandi.

Hér eru leiðbeiningar framkvæmdastjórnarinnar.

Sjá nánar um réttindi flugfarþega hér.

Sjá nánar um réttindi pakkaferðalanga hér.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.