Fréttir

Svik á samfélagsmiðlum

BEUC

Ítarleg rannsókn neytendasamtakanna í Evrópu leiðir í ljós að Meta, TikTok og Google láta hjá líða að vernda neytendur gegn svikaauglýsingum á miðlum sínum.

Evrópusamtök neytenda (BEUC) hafa ásamt 29 aðildarsamtökum frá 27 löndum lagt fram kvörtun til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gegn Meta, TikTok og Google. Er framkvæmdastjórnin hvött til að rannsaka hvað fyrirtækin hafa gert til að draga úr kerfislægri áhættu þegar kemur að svikaauglýsingum. Samtökin krefjast þess einnig að samfélagsmiðafyrirtækin virði lög um stafræna þjónustu (Digital Service Act) ellegar verði þau beitt sektum.

Fjöldi svikaauglýsinga í umferð

Á fjögurra mánaða tímabili tilkynntu neytendasamtök í 13 Evrópulöndum, auk Evrópusamtaka neytenda (BEUC), nærri 900 svikaauglýsingar til samfélagsmiðlafyrirtækjanna. Var það mat samtakanna að umræddar auglýsingar brytu gegn lögum um stafræna þónustu. Í aðeins 27% tilfella voru auglýsingarnar fjarlægðar. Í flestum tilfellum var tilkynningum hafnað eða þær hundsaðar. Þetta þýðir að hundruð svikaauglýsinga eru enn á þessum miðlum. Þær ná til meira en 200 milljón neytenda í hverjum mánuði sem eiga þannig á hættu að verða svikurum að bráð.

Miðlarnir spila stórt hlutverk

Europol hefur skilgreint fjárfestasvik sem algengustu tegund netsvika og þá sem vex hvað hraðast. Europol hefur einnig bent á að glæpasamtök reiði sig í miklum mæli á auglýsingar á samfélagsmiðlum sem og leitarvélar til að ginna og féfletta fórnarlömb sín.

Samfélagsmiðlafyrirtækin græða á svikaauglýsingum eins og fjallað hefur verið um í Neytendablaðinu, sjá hlekk neðst í grein. Samkvæmt innanhúsgögnum Meta árið 2024 áætlaði fyrirtækið að 10% tekna mætti rekja til svikaauglýsinga. Þessi staða er óásættanleg fyrir notendur samfélagsmiðla.

Agustín Reyna, framkvæmdastjóri BEUC, sagði í tilefni af útgáfu skýrslunnar að samkvæmt lögum um stafræna þjónustu bæri Meta, TikTok og Google að hafa fullnægjandi úrræði til að verjast svikaauglýsingum. Því miður sýni rannsóknir að það sé himinn og haf á milli þess sem samfélagsmiðlarisarnir segjast gera og því sem raunverulega á sér stað. Í reynd sé það svo að Meta, TikTok og Google hafi hvorki frumkvæði að því að fjarlægja svikauaglýsingar af miðlum sínum né bregðist hratt við þegar tilkynnt er um slíkar auglýsingar.

„Það er brýnt að Meta, TikTok og Google sæti ábyrgð,“ segir framkvæmdastjórinn. „Nái fyrirtækin ekki tökum á þessari svikastarfsemi mun það hafa áhrif á milljónir evrópskra neytenda sem eiga á hættu að tapa háum upphæðum.“

Sjá rannsókn BEUC Sponsored by scammers

Sjá áhugaverða umfjöllun um svikaauglýsingar á Facebook

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.