Fréttir

Vaxtamálið: prófmál endurflutt í Hæstarétti

Vaxtamálið merki

Með vísan í lög um meðferð einkamála hefur Hæstiréttur ákveðið að eitt prófmála í Vaxtamálinu,  mál gegn Íslandsbanka, verði endurflutt.  Eftir því sem Neytendasamtökin komast næst er þetta í fyrsta sinn sem Hæstiréttur lætur endurflytja mál sem þegar hefur verið flutt.

Í ákvörðun sinni, sem birt var þann 27. maí, í máli nr. 55/2024, kemur fram að rétturinn hafi tekið þessa ákvörðun í því skyni að fá afstöðu málsaðila til fjögurra atriða, sem kjarna má á eftirfarandi hátt:

  1. Ef skilmáli samningsins (sem deilt er um) er ólöglegur, gæti samningurinn staðið að öðru leyti  óbreyttur, þ.e.a.s. án vaxtabreytinga?
  2. Ef skilmálinn er ólöglegur, ættu vextir að vera reiknaðir skv. 4. gr. vaxtalaga?
  3. Væri hægt að ógilda samninginn einungis að hluta? Hvaða hluta?
  4. Hvernig gæti samningurinn uppfyllt skilyrði um jafnvægi milli aðila ef samningurinn vísar til margra þátta án þess að vægi hvers þáttar sé tilgreint.

Málið, sem áður var flutt 7. maí síðastliðinn, verður flutt aftur í heild sinni þann 16. september 2025.

Hér má finna ákvörðun Hæstaréttar.

Hér má finna upplýsingar um Vaxtamálið.

Fréttir í sama dúr

Hættið að innheimta vangreiðslugjöld

Sólarvörn frá Temu, Shein og AliExpress falla á prófinu

Áskorun um vernd í netviðskiptum

Réttindi flugfarþega varin og efld!

Réttur flugfarþega vegna aflýsinga 

Verjið og eflið réttindi flugfarþega!

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.